Samfélagsmiðlar

Fleiri verkföll á þýskum flugvöllum

Enn verður röskun í samgöngukerfi Evrópu vegna verkfalla. Nú boða næst fjölmennustu verkalýðssamtök Þýskalands verkföll á flugvöllunum í Berlín og víðar norðanverðu landinu á mánudag. Þann dag er Berlínarflug á áætlun Icelandair og Play. Búast má við töfum í öryggishliðum.

Frá Brandenburg-flugvelli í Berlín

Það er sannarlega ólga á evrópskum vinnumarkaði og hún hefur ekki síst haft áhrif á samgöngur og ferðaþjónustu það sem af er ári. Viðamiklar verkfallsaðgerðir nánast lömuðu samgöngur í Frakklandi í vikunni, brautarsamgöngur í Bretlandi hafa orðið fyrir verulegum truflunum vegna verkfalla og á Spáni fóru flugumferðarstjórar á 16 flugvöllum í verkfall í febrúarbyrjun. Svo er skemmst að minnast verkfalls félaga Eflingar sem var ekki síst beint að hótelum í Reykjavík.

Í Þýskalandi fóru félagar í næst stærstu verkalýðssamtökum landsins, Verdi, eða Vereinte Dienstleistungsgewerkschaft, í verkfall 17. febrúar og beindust aðgerðir að flugvöllum í Köln, Düsseldorf og Frankfurt. Barátta Verdi heldur áfram og hafa verið boðuð verkföll öryggisstarfsfólks á mánudag á flugvöllum í norðanverðu landinu, þar á meðal í höfuðborginni Berlín og einnig á smærri flugvöllum eins og í Hamborg, Hanover og Bremen. Búist er við að mörgum flugferðum verði aflýst og miklar biðraðir myndist. 

Brandenburg-flugvöllur í Berlín

Í tilkynningu frá Verdi segir að árum saman hafi staðið deilur um þær greiðslur sem öryggisstarfsfólk fær fyrir næturvaktir og vinnu um helgar og á hátíðum. Engar kjarabætur fyrir yfirvinnu hafi fengist frá árinu 2006 en viðræður hafi staðið frá 2013 án árangurs.

Ástæða þess að upp úr sýður núna í Þýskalandi og víðar í Evrópu er hækkað verð á matvælum og bensíni sem kemur auðvitað verst niður á fólkinu með lægstu launin. Þessi lífskjaraskerðing, sem rekja má til áhrifa af stríðinu í Úkraínu, kemur í kjölfar kórónaveirufaraldursins sem leiddi til atvinnumissis eða verulegrar kjaraskerðingar hjá mörgu vinnandi fólki – ekki síst þeim sem störfuðu við samgöngur og ferðaþjónustu. 

Meðal flugfélaga sem verða mjög fyrir barðinu á þessum aðgerðum á mánudag eru Lufthansa, EasyJet og Air France-KLM. Bæði íslensku flugfélögin áætla flug til Brandenburg-flugvallar í Berlín á mánudag, Play kl. 6.00 og Icelandair kl. 7.40. Búast má við að brottfararfarþegar verði fyrir töfum vegna verkfallsaðgerðanna.

13.3. Athugasemd: Icelandair aflýsti flugi til Berlínar kl. 7.40

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …