Samfélagsmiðlar

Stærsta flugfélag Norðurlanda óskar eftir nýjum hluthöfum

Stjórnendur SAS gera ráð fyrir að félagið skili methagnaði eftir tvö ár og þeir leita nú nýrra hluthafa.

Hollendingurinn Anko van der Werff er forstjóri SAS.

Þegar verkfall flugmanna SAS hófst í byrjun júlí í fyrra lögðu stjórnendur flugfélagsins inn beiðni hjá bandarískum dómstólum um gjaldþrotavernd, svokallað Chapter-11 ferli. Umsóknin var samþykkt og síðustu misseri hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu þessa stærsta flugfélags Norðurlanda.

Skuldir hafa verið afskrifaðar og samið hefur verið á upp á nýtt við flugvélaeigendur en SAS, líkt og mörg önnur flugfélög, leigir stærsta hluta af þeim þotum sem nýttar eru í rekstrinum.

Nú í morgun sendi SAS svo út tilkynningu þar sem segir að nú sé tímabært að taka næsta skref í ferlinu og hefja söfnun nýs hlutafjár.

Flugvél SAS á Kaupmannahafnar-flugvelli – MYND: ÓJ

Það liggur þó ekki fyrir á hvaða gengi nýju hlutabréfin verða seld eða hvort gamla hlutaféð verði einhvers virði en stjórnendur SAS óska eftir því að áhugasamir fjárfestar gefi sig fram. Er þá aðeins horft til stórra fjárfesta og danska ríkisins eins og bent er á í tilkynningu morgunsins.

Ráðamenn í Danmörku hafa nefnilega gefið út að ríkissjóður landsins muni taka þátt í hlutafjáraukningu SAS, bæði með því að breyta skuldum í hlutafé og eins með kaupum á nýju.

Hinn aðaleigandinn, sænska ríkið, ætlar aftur á móti að sitja hjá nema hvað Svíar eru til í að breyta kröfum í hlutafé. Sömu sögu er að segja af Norðmönnum en norska ríkisstjórnin seldi allan sinn hlut í SAS sumarið 2018 en lánaði félaginu umtalsverðar upphæðir í heimsfaraldrinum.

Þjónusta um borð í flugvél SAS – MYND: ÓJ

Um helmingur af því fjármagni sem stendur til að safna í komandi hlutafjárútboði fer í að greiða upp lán sem SAS tók til að koma sér í gegnum fyrrnefnt Chapter-11 ferli. Lánveitandinn er bandarískum sjóður sem ber heitið Apollo Management og hefur verið skilgreindur sem hrægammasjóður í skandinavísku pressunni.

Apollo hefur stundað það síðustu ár að lána flugfélögum í Norður- og Suður-Ameríku, sem komin eru á vonarvöl, umtalsverðar upphæðir en fengið í staðinn forkaupsrétt á nýju hlutafé. Þennan rétt hefur sjóðurinn nýtt sér og búist er við að Apollo verði einn stærsti, ef ekki stærsti, hluthafinn í SAS þegar komandi hlutafjárútboð klárast líkt og Túristi fór yfir í fréttaskýringu nýverið.

Þar var bent á að stærsti hluthafi Icelandair er bandarískur sjóður sem róið hefur á sömu mið og Apollo.

Á flag yfir Ölpunum – MYND: ÓJ

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …