Samfélagsmiðlar

Hlutfall bandarískra og breskra ferðamanna rýkur upp

Talning á fjölda ferðamanna fer fram við vopnaleitina í Leifsstöð.

Það voru 102 þúsund ferðamenn hér á landi í apríl í fyrra en í síðasta mánuði fóru 127 þúsund útlendingar í gegnum vopnaleitina í Leifsstöð. Talningin þar er notuð til að meta fjölda ferðamanna hér á landi.

Í þessum hópi voru 38 þúsund Bandaríkjamenn og 24 þúsund Bretar.

Annar hver útlendingur (49%) sem flaug frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði var því annað hvort breskur eða bandarískur. Svo hátt var hlutfall þessara þjóða ekki í ferðamannahópnum á árunum yfir heimsfaraldur.

Í apríl 2019 var vægi Bandaríkjamanna og Breta 35 prósent, 41 prósent árið á undan og 44 prósent árið 2017. Aukningin skrifast á bæða þjóðir eins og sjá má hér fyrir neðan.

Fyrstu fjóra mánuði ársins er hlutfallið það sama því 49 prósent ferðamanna var með breskt eða bandarískt vegabréf. Hlutfallið var 46 prósent fyrstu fjóra mánuðina metárið 2018.

Á eftir Bretum og Bandaríkjamönnum þá voru Pólverjar þriðja fjölmennasta þjóðin í hópi ferðamanna í síðasta mánuði en í því samhengi ber að nefna að útlendingar búsettir hér á landi eru meðtaldir. Í næstu sætum komu Þjóðverjar og Frakkar.

Áfram miklu fleiri Ítalir

Allt árið í fyrra komu hingað mun fleiri Hollendingar og Ítalir en nokkurn tíma áður. Nú fækkar aftur á móti hollensku ferðamönnunum í samanburði við metárið 2018 en Íslandsferðir frá Ítalíu er ennþá í sókn. Í apríl voru ítölsku ferðamennirnir 4.518 en eða tvöfalt fleiri en á sama tíma fyrir fimm árum síðan.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …