Samfélagsmiðlar

Japanskur efnahagur lifnar við

Efnahagslífið í Japan hefur tekið betur við sér eftir heimsfaraldur en spáð hafði verið. Aukin neysla heima fyrir vegur upp á móti minni erlendri eftirspurn og gefur vonir um mjög hægan en öruggan efnahagsbata.

Klæðaverslun í Tókýó

Heimsfaraldurinn hægði verulega á hjólum efnahagslífsins í Japan eins og annars staðar. Harðar sóttvarnaraðgerðir lömuðu ferðaþjónustuna og mjög dró úr verslun og viðskiptum. Japanska hagkerfið er mjög háð útflutningi og hefur minnkandi eftirspurn frá Bandaríkjunum, Evrópu og Kína aukið óvissu um það hvenær seðlabanki landsins getur dregið úr sínum aðgerðum til að örva efnahagslífið.

Kaupmaður í verslun sinni í Tókýó – MYND: ÓJ

„Efnahagsvöxturinn mun áfram byggjast á neyslu. Þar hjálpar til að fólk eyðir meiru í ferðalög og þjónustu eftir því sem hindranir vegna Covid-19 hverfa,“ hefur Reuters-fréttastofan eftir japönskum hagfræðingi, sem bendir þó á að efnahagsbatinn verði hægur vegna lítillar spurnar erlendis eftir japanskri framleiðslu.

Verslun með hnífa og skæri – MYND: ÓJ

Japan er þriðja stærsta hagkerfi heims og mældist efnahagsvöxturinn 1,6 prósent á fyrsta fjórðungi ársins, samkvæmt opinberum tölum. Þetta er miklu meiri bati en markaðurinn hafði spáð – og fyrsti vaxtarkippurinn sem sést hefur frá miðju síðasta ári. Mestu munar um aukna neyslu Japana sjálfra en innanlandsneyslan vegur rúman helming af heildarumsvifum í efnahagslífi landsins. Á sama tíma dró úr erlendri eftirspurn um 4,2 prósent og er það í fyrsta skipti frá 2021 að það gerist. Ekki eru horfur á að mikil breyting verði á því á næstunni. Alþjóðlega efnahagskreppan heldur áfram. Neytendur víða um heim halda lengur í gamla bílinn, sleppa því að endurnýja eldhúsgræjurnar, sjónvarpið eða leikjatölvuna. Og þó að innanlandsneyslan í Japan hafi tekið kipp þá eru neytendur þar eins og annars staðar að takast á við hækkað verð á eldsneyti og matvælum. Japanar búast því ekki við þenslu og efnahagslegum uppgangi alveg á næstunni. 

Heimamaður kaupir sér snarl – MYND: ÓJ

Japönsk ferðaþjónusta hefur enn ekki jafnað sig eftir heimsfaraldurinn. Innan við 250 þúsund ferðamenn komu til landsins 2021 og tæpar 4 milljónir í fyrra. Um 1,5 milljónir komu til landsins í janúar síðastliðinn, sem var aðeins um helmingur af þeim fjölda sem kom metárið 2019. Ferðafólki hefur hægt og bítandi fjölgað í Japan það sem af er ári en þó er ekki búist við að þeir verði nema um 20 milljónir í heildina, sem er aðeins helmingurinn af þeim fjölda sem heimsótti landið 2019. Hafa stjórnvöld í Japan gripið til fjölþættra aðgerða til að styðja við endurreisn ferðaþjónustunnar í landinu.

Verslun með hefðbundinn klæðnað – MYND: ÓJ

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …