Samfélagsmiðlar

Klassík við Hafnarstræti

Viðbygging við Hótel Akureyri verður tekin í notkun í desember. Áform eru um meiri stækkun á gistirými hótelsins í Hafnarstræti. Sérstaklega verður gætt að því að viðhalda yfirbragði og stíl í þessari merkilegu húsaröð í miðbæ Akureyrar.

Fyrirhuguð stækkun á Hótel Akureyri - með viðbyggingu og hækkun á Dynheimum

„Stækkunin hefur verið lengi á teikniborðinu,” segir Daníel Smárason, eigandi Hótels Akureyrar. Hótelið er í tveimur merkishúsum, Hafnarstræti 67 og 73: Skjaldborg var fyrsta húsið á Akureyri sem sérstaklega var byggt fyrir kvikmyndasýningar. Síðar var prentsmiðja í húsinu. Aðeins utar stendur annað gamalt samkomu- og bíóhús, Lón, sem síðar nefndist Dynheimar.

Hótel Skjaldborg og nærliggjandi hús – MYND: ÓJ

Mjög hefur vantað gistirými á Akureyri, sérstaklega á sumrin, en Daníel segir að fyrirhuguð stækkun sé ekki viðbrögð við þeirri umræðu.

„Þetta er rökrétt framhald á þeirri uppbyggingu sem við fjölskyldan höfum unnið að árum saman. Við erum byrjuð á 1.150 fermetra viðbyggingu við Skjaldborg. Þar verða samtals 52 herbergi, ný móttaka og þjónusta á jarðhæð. Opnun er áætluð í desember á þessu ári.” 

Horft fram í Eyjafjörð frá Skjaldborg – MYND: ÓJ

En Daníel og fjölskylda ætlar ekki að láta staðar numið eftir stækkun á Skjaldborg

„Á lóð nr. 75 vonumst við til að byggja samskonar hús með tengingu við Hafnarstræti 73. Húsin okkar eru glæsileg og eiga gríðarlega áhugaverða sögu. Við hönnun nýbygginganna teljum við algjört lykilatriði að viðhalda klassískum sjónarmiðum hvað varðar hönnun og útlit.”

Daníel er bjartsýnn á að sumarið verði gott fyrir norðan.  

„Sumarið verður gott. Bókanir eru umfram áætlanir. Nýjum veitingastaðnum á jarðhæð hótelsins, North, sem rekinn er af Gunnari Karli og Rafni Svanssyni hefur verið tekið gríðarlega vel og Akureyri iðar af lífi.”

Svona á húsaröðin við Hafnarstræti að líta út – MYND: Hótel Akureyri

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …