Það var árið 2017 sem sérstök skrifstofa ferðamála var sett á fót innan stjórnarráðsins og þá í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá voru starfsmennirnir fimm en reiknað var með að þeim yrði „fjölgað um einn til tvo til að styrkja starfið enn frekar“ eins og sagði í tilkynningu.
Skipulag stjórnarráðsins var stokkað upp í byrjun yfirstandandi kjörtímabils og ferðamálin fluttust þá yfir í menningar- og viðskiptaráðuneytið sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer fyrir. Þegar þarna var komið við sögu voru sérfræðingarnir á sviðinu fimm talsins auk skrifstofustjóra.
Í dag eru ferðamálin ekki lengur sjálfstætt svið innan ráðuneytisins og heyra undir skrifstofu viðskipta og ferðamála. Þar eru aðeins tveir sérfræðingar sem einbeita sér að ferðaþjónustu. Sá þriðji er farinn í tímabundin vistaskipti og stendur til að ráða í þá stöðu samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu.
Til samanburðar eru níu sérfræðingar á sviði sjávarútvegs í matvælaráðuneytinu og þeir eru jafnmargir sem sérhæfa sig í landbúnaði í því ráðuneyti.
Þegar spurt er ástæður fækkunar sérfræðinga á sviði ferðamála þá segir í svari menningar- og viðskiptaráðuneytis að tveir af þeim sex sem unnu á skrifstofunni í atvinnuvegaráðuneytinu hafi aðeins verið ráðnir tímabundið frá Stjórnstöð ferðamála í tengslum við vinnu við Vegvísi í ferðþjónustu. Í svarinu er því bætt við að starfsmenn á skrifstofu verðmætasköpunar sinni ferðamálunum að hluta til.