Samfélagsmiðlar

Birgir hættir og Einar Örn tekur við

Stjórn Play og forstjóri félagsins, Birgir Jónsson, hafa í dag gert samkomulag um starfslok hans. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri Play.

Birgir Jónsson hættir sem forstjóri Play en hann hefur farið fyrir félaginu frá því að það fékk flugrekstrarleyfi sumarið 2021.

„Á tiltölulega skömmum tíma er orðið til öflugt íslenskt lággjaldaflugfélag með framúrskarandi vöru og þjónustu og bjarta framtíð. Virk samkeppni í flugi sem skilar sér í lægri fargjöldum, fjölbreyttum áfangastöðum og verðmætum erlendum gestum er sérstaklega mikilvæg fyrir eyju eins og okkar. Slík samkeppni varðar hagsmuni allra Íslendinga. Ég geng þess vegna ákaflega stoltur frá borði,“ segir Birgir Jónsson, í kauphallartilkynningu, þar sem starfslok hans hjá Play eru kynnt.

Við starfi Birgis tekur Einar Örn Ólafsson stjórnarformaður Play og stærsti einstaki hluthafinn. Einar Örn verður því ekki í kjöri sem stjórnarformaður á aðalfundi Play á fimmtudaginn kemur.

Einar Örn Ólafsson.

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni. Eftir kröftugt uppbyggingarstarf síðustu ára undir öflugri forystu Birgis er félagið á ákveðnum tímamótum. Sem stærsti einstaki hluthafi félagsins vil ég fylgja fjárfestingu minni eftir. Ég þekki vel til starfsemi og starfsmanna Play og sé mörg tækifæri og spennandi viðfangsefni framundan í rekstrinum,” segir Einar Örn. 

Í tilkynningu segir að Einar Örn hafi tekið þátt í rekstri ýmissa félaga bæði sem fjárfestir og stjórnandi. Hann er stjórnarformaður Terra hf. og var áður forstjóri Fjarðarlax og Skeljungs ásamt því að búa yfir viðamikilli starfsreynslu á fjármálamarkaði. Einar Örn útskrifaðist með MBA gráðu frá NYU, Stern School of Business árið 2003 og er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Birgir mun starfa áfram hjá Play fram til 2. apríl næstkomandi og mun í framhaldinu verða félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.

Í tölvupósti sem Birgir sendi á samstarfsfólk sitt í Play seinnipartinn í dag skrifar hann að forstjóraskiptin séu gerð í góðu og þeir Einar verði áfram góðir vinir. Birgir segir að þeir tveir hafi stundum rætt það sín á milli að það kynni að vera eðlilegt næsta skref að Einar Örn taki við sem forstjóri.

Aðalfundur Play fer fram á fimmtudaginn sem fyrr segir og þar verður Einar Örn ekki í framboði til stjórnarformanns eins og áður hafði verið boðað. Á lista yfir frambjóðendur til stjórnar er nú að finna nafn Sigurðar Kára Kristjánssonar lögmanns.

Á dagskrá aðalfundarins er atkvæðagreiðsla um hlutafjáraukningu í flugfélaginu upp á allt að 5,2 milljarða króna. Nú þegar hafa safnast vilyrði fyrir 4 milljarða kr. innspýtingu og af þeirri upphæð koma 2,6 milljarðar kr. frá stærstu hluthöfunum. Ekki hefur þó komið fram nákvæmlega hvaða hluthafar þetta eru en líkt og FF7 hefur áður greint frá þá ætla tveir lífeyrissjóðir, sem eru á lista yfir 20 stærstu hluthafanna, ekki að taka þátt.

Auk þess hefur einn stærsti hluthafinn selt stóra hluta af bréfum sínum í flugfélaginu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …