Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur.
Það eru því jákvæð tíðindi fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki, þar með talin flugfélögin, að nú fer verðbólgan í Frakklandi lækkandi en hún fór undir 3 prósent nú í mars. Svo lág hefur hún ekki verið síðan ágúst árið 2021 samkvæmt frétt Bloomberg.
Hinn almenni launþegi í Frakklandi ætti því hafa meira til umráða á næstunni til að eyða í ferðalög en það er í ágúst sem hópur franskra ferðamanna hér á landi er stærstur. Þá er líka hitinn mestur á þeirra heimaslóðum.