Samfélagsmiðlar

Í fyrsta sinn fjögur flugfélög milli Íslands og Frakklands

Signa

Selfí við Signu. MYND: ÓJ

Á fyrstu árum þessarar aldar var ekki flogið daglega milli Íslands og Parísar allt árið um kring. Þotur Icelandair flugu þá tvær ferðir í viku til Charles de Gaulle flugvallar yfir vetrarmánuðina. Vorið 2007 hóf Iceland Express áætlunarflug þangað og síðan þá hefur ríkt samkeppni um farþega á leið milli Parísar til Íslands, fyrst yfir sumarmánuðina og síðan allt árið um kring.

Stærsta flugfélag Frakka, Air France, hefur ekki blandað sér í slaginn en dótturfélag þess, Transavia, hefur boðið upp á Íslandsflug frá Orly flugvell, sunnan við París, um langt árabil og næsta vetur ætlar hið breska Easyjet að fljúga frá þeim flugvelli til Íslands í fyrsta sinn. Ferðirnar verða tvær ferðir í viku.

Þar með verður samkeppnin um farþega á leið milli Íslands og höfuðborgar Frakklands óvenju hörð en stór hluti þeirra sem nýtir sér flugferðir Icelandair og Play, til og frá Charles de Gaulle, eru tengifarþegar á leið alla leið til Norður-Ameríku.

Af flugfélögunum fjórum verður Icelandair umsvifamest næsta vetur með 11 brottfarir frá París í viku, þotur Play fljúga daglega, Transavia þrjár til fjórar ferðir í viku og Easyjet tvær. Þess ber þó að geta að Transavia hefur ekki birt dagskrá sína en félagið gerir það alla vegna með styttri fyrirvara en keppinautarnir.

Síðustu fjóra mánuði hafa 20 þúsund Frakkar flogið frá Keflavíkurflugvelli en þessi talning Ferðamálastofu er nýtt til að leggja mat á fjölda ferðamanna á landinu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …