Samfélagsmiðlar

Hefja rannsókn á Apple, Meta og Google

Hin danska Margrethe Vestager fer fyrir samkeppnismálum innan framkvæmdastjórnar ESB og mál tæknirisanna er á hennar könnu. MYND: ESB

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti á mánudag að hún hefði hafið rannsóknir á bandarísku tæknirisunum Alphabet, móðurfélagi Google, Apple og Meta sem rekur Facebook og Instagram.

Rannsóknin snýr að mögulegum brotum fyrirtækjanna þriggja á lögum ESB um hinn stafræna markað. Þessi lög tóku nýverið gildi en tilgangur þeirra er að koma í veg fyrir yfirburði fárra netfyrirtækja, svokallaðra „hliðvarða“, á evrópska markaðnum.

Rannsaka á Alphabet og Apple vegna gruns um að þau heimili ekki utanaðkomandi aðilum að beina notendum frá appverslunum tæknirisanna. Þess í stað sé umferðinni stýrt til Apple og Alphabet sem taki til sín þóknanir af öllu því sem þar er selt, til dæmis áskriftir af streymisveitum og fjölmiðlum.

Alphabet verður einnig tekið til skoðunar vegna Google Flights og Google Hotels sem mögulega njóta forgangs á Google leitarvélinni að því fram kemur í tilkynningu frá ESB.

Rannsóknin á Met snýst helst að því hvort notendur Facebook og Instagram fái nægjanlegt val þegar kemur að deilingu á persónuupplýsingum en þau gögn hefur Meta í áraraðir notfært sér til að beina sérniðnum auglýsingum að notendum sínum. Í staðinn borgar fólk ekki fyrir að nota samfélagsmiðla fyrirtækisins.

Gert er ráð fyrir að rannsóknin taki allt að eitt ár en verði fyrirtækin fundin sek geta þau átt von á sekt sem jafngildir allt að tíund af veltu þeirra á heimsvísu í eitt ár.

Tekjur Apple námu 385 milljörðum dala á síðasta ári, Alphabet velti 307 milljörðum dala og Meta 134 milljörðum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …