Samfélagsmiðlar

Sætanýtingin í Bandaríkjafluginu batnaði ekki þrátt fyrir brotthvarf Delta og WOW air

Í heildina minnkaði framboð á flugsætum um rúmlega helming milli janúar og febrúar 2018 og í ár.

Icelandair var á nýjan leik eitt um áætlunarferðir milli Íslands og Bandaríkjanna síðastliðinn vetur. Þar á undan höfðu nefnilega bæði Delta og WOW air veitt félaginu samkeppni allt árið um kring. Þrátt fyrir þessa miklu breytingu þá skar Icelandair niður framboð í ársbyrjun og um leið lækkaði sætanýtingin lítillega.

Hjá AerLingus, sem sækir mikið á sömu mið og Icelandair, var þróunin aftur á móti önnur. Írska flugfélagið jók framboði og nýtingin hækkaði en var þó lægri en hjá Icelandair.

Tólf prósent samdráttur

Það var ekki fyrr en í mars sem kórónaveiran setti áætlunarflug milli Evrópu og Bandaríkjanna almennilega úr skorðum. Fyrstu tveir mánuðir ársins voru því hefðbundnir að miklu leyti og flutti Icelandair þá rúmlega 118 þúsund farþega til og frá Bandaríkjunum.

Það jafngilti tólf prósent samdrætti frá janúar og febrúar árið 2019. En í ársbyrjun í fyrra var WOW air á síðustu metrunum og hafði dregið verulega úr flugi vestur um haf. Delta var þó ennþá með sínar ferðir milli Íslands og New York.

Í janúar og febrúar í ár var Icelandair aftur á móti orðið eitt um áætlunarferðirnar héðan til Bandaríkjanna. Félagið skar engu að síður niður framboðið samkvæmt því sem lesa má út úr farþegatölum frá bandarísku samgöngustofnuninni. Þau gögn ná reyndar fram í mars en sá mánuður litaðist verulega af útbreiðslu Covid-19 og því er honum sleppt í þessari úttekt Túrista.

Sætanýtingin mun lægri en fyrir samkeppnina

Heildarfjöldi flugsæta, sem Icelandair hafði í boði milli Íslands og Bandaríkjanna, dróst sömuleiðis saman um 12 prósent líkt og farþegunum þessa fyrstu tvo mánuði ársins. Að jafnaði voru því 72,2 prósent sætanna skipuð farþegum en hlutfallið var aftur á móti 72,6 prósent í janúar og febrúar í fyrra.

Nýtingin var reyndar 79,7 prósent í ársbyrjun 2015 en síðar það ár fór WOW air í jómfrúarferð sína til Bandaríkjanna. Svo bætti Delta við vetrarferðum til Íslands frá New York og markaðurinn gjörbreyttist. Sætanýtingin lækkaði hjá Icelandair í kjölfarið eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan.

Írska „Value-flugfélagið“ bætti í

Sem fyrr segir dró Icelandair úr framboði á flugi til Bandaríkjanna í byrjun þessa árs. Það gerði aftur á móti ekki Aer Lingus. Framboð þess félags jókst um 11,5 prósent í ársbyrjun og sætanýtingin fór úr 69,5 prósentum í 71,8 prósent. Hún var sem sagt lægri en hjá Icelandair en Aer Lingus gerir líkt og Icelandair mikið út á flug milli Evrópu og Norður-Ameríku. Bæði staðsetja sig mitt á milli lágfargjaldaflugfélaga og hefbundinna og til marks um það er Aer Lingus sagt vera „Value-Airline“ á heimasíðu flugfélagsins.

Hafa ber í huga að flugfélög reikna út sætanýtingu eftir fluglengd og framboði. Útreikningarnir hér að ofan byggja þó aðeins á framboðnum sætum og fjölda farþega.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …