Samfélagsmiðlar

Einn helsti keppinautur Keflavíkurflugvallar lækkar álögur

Flugáætlanir flugfélaga fyrir komandi sumar eru ennþá í mótun og til marks um það hætti American Airlines nýverið við flug til Íslands í ár. Félagið heldur í áform sín um flug til Dublin.

Flugstöðin við flugvöllinn í Dublin á Írlandi.

Farþegum á flugvellinum í Dublin hefur fækkað um 77 prósent í ár og nú ætla flugmálayfirvöld á Írlandi að veita flugfélögum viðbótarafslætti næsta sumar og lækka farþegagjöldin um leið.

Flugvöllurinn í Dublin er einmitt einn þeirra sem stjórnendur Isavia horfa til sem keppinaut þegar kemur að farþegum á leið yfir Norður-Atlantshafið. Farþegagjöldin á Keflavíkurflugvelli eru hins vegar töluvert hærri en í Dublin og nú mun bilið breikka ennþá frekar.

Þannig lækkar farþegagjaldið í Dublin um tíund nú í sumar fyrir flugfélög sem keyra flugvélarnar upp að flugstöðinni og verður það 1535 krónur (9,8 evrur) á hvern farþega. Ef flugfélög láta sér nægja að stoppa út á flughlaðinu á lækkar gjaldið um þriðjung og verður 814 krónur (5,2evrur).

Farþegagjaldið á Keflavíkurflugvelli er reyndar aðeins lægra eða 797 krónur (5,09 evrur). Þar á bæ bætist hins vegar við öryggisgjald upp á 1350 krónur á hvern brottfararfarþega. Öryggisgjaldið er aftur á móti innifalið í farþegagjaldinu í Dublin samkvæmt svörum þaðan við fyrirspurn Túrista.

Heildar brottfarargjaldið á hvern farþega á Keflavíkurflugvelli er því 2147 krónur á gengi dagsins eða fjörutíu prósent hærra en hæsta gjaldið í Dublin. Munurinn er hins vegar nærri þrefaldur ef horft er til lægstu gjaldanna á írska flugvellinum.

Hið nýja hvatakerfi í Dublin eykur svo ennþá meira á muninn. Þá munu nefnilega flugfélög sem ná helmingi af þeim farþegafjölda sem þau voru með 2019 og 2020 fá helmings afslátt af gjöldum viðbótarfarþeganna. Ef flugfélög ná hins vegar sjötíu prósent af fyrri farþegafjölda þá borga þau ekkert fyrir þá viðbót.

Núverandi hvatakerfi Keflavíkurflugvallar byggja hins vegar á því að veita afslætti fyrir nýjar flugleiðir. Ekki þær sem fyrir eru.

Flugmálayfirvöld í Dublin gera ráð fyrir að endurgreiða allt að 50 milljónir evra (7,8 milljarða kr.) til flugfélaga í tengslum við þetta nýja hvatakerfi.

„Við sjáum að flugfélög eru núna að taka ákvarðanir um hvert eigi að fljúga þotunum næsta sumar og margir viðskiptavinir okkar eru með minni flota núna en í fyrra,“ segir Dalton Philips, forstjóri flugvallarins í Dublin, í viðtali við The Irish Times, um hið nýja hvatakerfi.

Líkt og fram kom í nýrri úttekt OECD þá eru tekjur Keflavíkurflugvallar á hvern farþega eru mun meiri en almennt gerist á evrópskum
flugvöllum. Stærsti viðskiptavinur flugvallarins hefur þó ekki gagnrýnt þá verðstefnu opinberlega og framboð á flugi hefur aukist verulega síðustu ár.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …