Samfélagsmiðlar

Delta gerir Ísland að heilsárs áfangastað

Eitt stærsta flugfélag heims eykur umsvif sín verulega hér á landi í ár með vetrarflugi frá New York og nýrri flugleið.
Síðustu fimm sumur hafa þotur bandaríska flugfélagsins Delta flogið allt að daglega hingað frá JFK flugvelli í New York en í ár hófst Íslandsflug félagsins frá heimsborginni strax í febrúar. Síðar í þessum mánuði bætir félagið svo við daglegum ferðum hingað frá Minneapolis. Forsvarsmenn Delta láta ekki þar við sitja því nú hafa þeir sett í sölu beint flug milli Íslands og New York allan næsta vetur. Flugleiðin verður þar með starfrækt allt árið um kring og verða farnar fjórar ferðir í viku næstkomandi vetur en yfir hásumarið eru brottfarirnar tvöfalt fleiri.

Eina félagið með svefnsæti

Með þessum viðbótum munu umsvif þessa risastóra flugfélags margfaldast hér á landi en Delta er jafnframt eina erlenda flugfélagið á Keflavíkurflugvelli sem ekki er evrópskt. Farþegarýminu í þotum bandaríska flugfélags er skipt í þrennt og í fremsta hluta þess er að finna svefnsæti (flat-bed) en þess háttar aðstaða er ekki eru í boði hjá neinu öðru flugfélagi sem flýgur til og frá Íslandi. Svoleiðis munaður kostar vissulega sitt eða að lágmarki rúmlega tvö hundruð þúsund krónur á meðan sæti á ódýrasta farrými til New York er á um 69 þúsund krónur samkvæmt athugun Túrista.

Hvað gerir WOW í New York?

Í dag flýgur Icelandair til New York flugvallanna JFK og Newark en WOW air hefur ennþá ekki bætt þessari stærstu borg Bandaríkjanna við leiðakerfi sitt. Á því kann að verða enn lengri bið þar sem afgreiðslutímar á flugvöllunum borgarinnar liggja ekki á lausu og hafa stjórnendur íslenska lággjaldaflugfélagsins meðal annars horft til lítils flugvallar í New York fylki. Með tilkomu heilsárs áætlunarflugs Delta hingað til lands frá JFK flugvelli í New York má segja að möguleikar WOW til að koma sér fyrir í borginni verði minni þar sem samkeppnin verður ennþá harðari. Fókusinn hjá forsvarsmönnum WOW er hins vegar líka á tengiflug milli N-Ameríku og Evrópu á meðan ferðinni hjá farþegum Delta í Bandaríkjunum er eingöngu heitið til Íslands en ekki til meginlands Evrópu. Þar af leiðandi er vetrarflug Delta hingað til lands góð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu en Bandaríkjannamenn ásamt Bretum eru langstærstu hópar ferðamanna hér á landi. Reyndar er hlutdeild þessara tveggja þjóða svo stór að talsmanni Samtaka ferðaþjónustunnar hefur þótt ástæða til að staldra við þennan mikla fjölda.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …