Samfélagsmiðlar

Stundvísitölur: Mörgum flugum seinkaði en tafirnar litlar

Fleiri brottfarir Iceland Express fóru í loftið á réttum tíma en hjá Icelandair á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar þess fyrrnefnda héldu þó aðeins í innan við þriðjungi tilfella.

Komu- og brottfarartímar á Keflavíkurflugvelli stóðust ekki áætlun í fjöldamörgum tilvikum fyrstu tvær vikurnar í desember. Á móti kemur að tafirnar voru oftast litlar og því var meðalbiðtíminn stuttur hjá bæði farþegum Icelandair og Iceland Express.

Það voru sérstaklega ferðir til landsins sem seinkaði oft og aðeins 28 prósent af komum Iceland Express voru á réttum tíma og 55 prósent hjá Icelandair.

Í fyrsta skipti síðan Túristi hóf að reikna út stundvísitölur sínar héldu flug Iceland Express frá landinu oftar áætlun en hjá Icelandair eins og sjá má á töflunni hér að neðan. Í heildina biðu farþegar þó aðeins í 11 mínútur hjá báðum félögum.

Þess ber að geta að stundvísitölur Túrista eru byggðar á upplýsingum af heimasíðu Keflavíkurflugvallar og þar koma ekki fram ástæður seinkanna. Því er ekki tekið tillit til þess þegar ófærð veldur töfum á flugi.

Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. desember (í sviga eru niðurstöður seinni hluta nóvember).

1. – 15. des.Hlutfall brottfara á tímaMeðalseinkun brottfaraHlutfall koma á tíma
Meðalseinkun komaHlutfall ferða á tíma
Meðalbið alls
Icelandair67% (84%)10 mín (3 mín)55% (68%)12 mín (8 mín)61% (76%)11 mín (5 mín)
Iceland Express75% (63%)6 mín (12 mín)28% (36%)16 mín (28 mín)51% (50%)

11 mín (20 mín)

Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum sem eru meira en stundarfjórðungur.

NÝJAR GREINAR: Meirihlutinn vildi morgunmat og nú er hann ókeypisFerðaminningar Steinars BragaÞetta kostar maturinn um borð
TENGDAR GREINAR: Farþegar Iceland Express eiga rétt á fari með öðrum flugfélögum

Mynd: Túristi

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …