Samfélagsmiðlar

Kynningarherferð Icelandair hlýtur virt þýsk verðlaun

icelandair palme

Íslenska flugfélagið er það „frumlegasta og hugmyndaríkasta“ í Evrópu að mati þýskrar dómnefndar. Íslenska flugfélagið er það „frumlegasta og hugmyndaríkasta“ í Evrópu að mati þýskrar dómnefndar.
Icelandair hlaut í gær hin eftirsóttu verðlaun þýsku ferðaþjónustunnar „Gullpálmann“ fyrir árið 2016. Verðlaunin, sem eru stundum kölluð óskarsverðlaun þýskrar ferðaþjónustu hafa verið veitt síðustu 20 árin á stærstu ferðakaupstefnu veraldar, ITB sem nú stendur yfir í Berlín. Þau eru veitt í 6 mismunandi flokkum, m.a. ferðaskrifstofum og áfangastöðum sem dómnefndin telur að hafi skarað fram úr á árinu. Icelandair er eina flugfélagið sem verðlaunað var að þessu sinni. Verðlaunin hlýtur Icelandair sem „frumlegasta og hugmyndaríkasta flugfélag ársins“ í Evrópu samkvæmt því sem segir í tilkynningu.

Í niðurstöðu dómnefndar segir að Icelandair hafi sýnt skemmtilega hugkvæmni og aðdáunarvert frumkvæði með því að virkja starfsfólk flugfélagsins til að gera svokölluðum „stop-over-farþegum“, sem gera stuttan stans á Íslandi á leið sinni milli Evrópu og Norður-Ameríku, Íslandsdvölina eftirminnilega. Það hafi verið einróma álit þeirra sem nutu þessarar svokölluðu „Stop-over-buddy“-þjónustu, þar sem starfsmenn kynntu farþegum flugfélagsins „sitt“ Ísland, að þetta hafi verið sannkallað ævintýri fyrir hina erlendu gesti.

Ein af forsendum þess að Icelandair hlýtur umrædda viðurkenningu er einnig sögð hafa verið sú að dagblaðið Süddeutsche Zeitung, sem er einn virtasti fjölmiðill Þýskalands, hafi séð ástæðu til að gera umræddu „buddy“-verkefni flugfélagsins ítarleg skil. Í tengslum við verðlaunaafhendinguna sem fram fór í glæsilegu samkomuhúsi Bertelsmann-stofnunarinnar við hina sögufrægu breiðgötu „Unter den Linden“ í Berlín í gærkvöldi, að viðstöddum fjölda boðsgesta úr opinberu lífi höfuðborgarinnar, hlýtur flugfélagið einnig veglega kynningu í nýjasta hefti tímaristins GEO Saison, sem er eitt víðlesnasta ferðamálatímarit Þýskalands.

„Það er ótvírætt mikill heiður fyrir Icelandair að hljóta þessi „óskarsverðlaun“ þýskrar ferðaþjónustu, ekki síst þegar haft er í huga að í dómnefndinni sitja nokkrir reyndustu og áhrifamestu ferðamálafrömuðir Þýskalands“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …