Samfélagsmiðlar

Fyrstu uppsagnirnar í 30 ára sögu fyrirtækisins

Gray Line á Íslandi segir upp starfsfólki vegna samdráttar sem rekja má breytinga á fyrirkomulagi á akstri með ferðamenn til og frá Bláa lóninu.

airportexpress

Forsvarsmenn Gray Line, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins, hafa ákveðið að segja upp um 15 starfsmönnum, um 5% af starfsmannafjöldanum, vegna samdráttar í verkefnum. Er þetta fyrsta skipti í 30 ára sögu félagsins sem bregðast þarf við samdrætti með uppsögnum.

Í tilkynningu segir að rekja megi þessar breytingar til þeirrar ákvörðunar eigenda Bláa lónsins að segja upp samkomulagi við Gray Line um sölu á baðgjaldi í lónið frá 1. apríl síðastliðnum. „Áætlunarferðir Gray Line í Bláa lónið hafa verið ein af meginstoðum afþreyingaferða fyrirtækisins í 20 ár og hefur félagið flutt hundruð þúsund gesta í lónið. Algjör forsenda þess að geta boðið ferðir í Bláa Lónið er að viðskiptavinir geti um leið keypt baðgjald,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Þar er jafnframt rakið að nýverið hafi Bláa lónið sjálft, í samstarfi við Hópbíla, farið að bjóða upp á eigin sætaferðir að baðstaðnum. „Þessi eigendahópur virðist hafa sammælst um að losa sig við samkeppnina til að skapa rými fyrir eigið fyrirtæki í þessum ferðum. Það er áhyggjuefni að eigendasamþjöppun af þessu tagi með tilheyrandi samkeppnishindrunum skuli vera að raungerast með svo ógagnsæjum hætti. En það er ný samkeppnisáskorun sem þarf þá að takast á við.“

Þess má geta að undanfarin ár hafa þeir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, og Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, leitt Samtök ferðaþjónustunnar. Grímur var formaður samtakanna en Þórir varaformaður þar til í síðasta mánuði.

Krónan veldur búsifjum

Í tilkynningu Gray Line er þess jafnframt getið að samkeppni í afþreyingarferðum með ferðafólk sé mikil og að fargjöld í vinsælustu ferðir fyrirtækisins hafi lækkað í íslenskum krónum. Á sama tíma hefur krónan hins vegar styrkst og þar með hafa ferðirnar hækkað í erlendri mynt. Vegna þessa segja forsvarsmenn Gray Line að bregðast verði við með því að draga úr vöruþróun og nýsköpun sem hafi snúist um að byggja upp nýja ferðamöguleika og stuðla að dreifingu ferðamanna.

Getuleysi stjórnvalda er algjört

Stjórnendur Gray Line gagnrýna líka stjórnvöld fyrir að að hafa ekki brugðist við undirboðum erlendra hópferðafyrirtækja á íslenska markaðnum síðustu ár. „Þessi fyrirtæki koma með hópferðabíla sína til landsins, sniðganga skatta og gjöld og fara ekki eftir íslenskum kjarasamningum. Kostnaður þeirra er þar af leiðandi mun lægri en hjá íslensku fyrirtækjunum sem standa skil á sköttum og gjöldum samkvæmt íslenskum lögum og reglum. Getuleysi stjórnvalda til að taka á þessum undirboðum og lögbrotum er algjört, sem og í fleiri sambærilegum málum er varða erlenda samkeppni í ferðaþjónustunni.“

 

 

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …