Samfélagsmiðlar

Heimshornaflakk með Loftleiðum

Loftleiðir semja við National Geographic til þriggja ára.

Í ferðunum eru Boeing 757 flugvélarnar innréttaðar með aðeins 50 til 80 sætum og mikil áhersla lögð á þægindi, veitingar og þjónustu.

Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur samið við National Geographic Partners / Global Adrenaline ferðaskrifstofuna um leiguflug með hópa í hágæðaheimsferðum. Flugið hefst undir lok næsta árs og er samningurinn til þriggja ára. Gert er ráð fyrir að tvær Boeing 757 vélar muni að jafnaði sinna ferðum af þessu tagi á næstu árum samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá fyrirækinu.

Í heimsferðunum er mikil áhersla lögð á fyrsta flokks þægindi, veitingar og þjónustu. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir Loftleiðir og starfsfólk Icelandair Group. Sérstakar innréttingar hafa verið settar í vélarnar til þess að sinna ferðunum. Flugliðar okkar og matreiðslumeistarar hafa fengið hæstu einkunn hjá farþegum þessara ferða í gegnum tíðina. Orðsporið er því gott sem hefur leitt til þess að mikil eftirspurn er eftir þjónustunni“, segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic.

Boeing 757 vélar félagsins eru sérstaklega útbúnar fyrir aðeins 80 farþega, sem hafa vélina til afnota sem einskonar einkaþotu meðan á heimsferðinni stendur. Hver ferð tekur að meðaltali þrjár vikur, þar sem 5-7 viðkomustaðir vítt og breitt um heiminn eru heimsóttir, og bíður flugvélin á meðan farþegar dvelja þar og skoða sig um. Flestar ferðirnar hefjast í Bandaríkjunum, en einstaka ferð byrjar í Evrópu eða Dubaí.

Að jafnaði verða 13 áhafnarmeðlimir í hverri ferð, 3 flugmenn, 7 flugfreyjur/þjónar, 2 matreiðslumeistarar og 1 flugvirki. Áætlað er að yfir 30 ferðir verði farnar á samningstímabilinu.

Loftleiðir Icelandic hafa í samstarfi við Icelandair sérhæft sig í slíkum ferðum á undanförnum árum með vaxandi umsvifum fyrir helstu ferðaskrifstofur á þessu sviði. Að baki hverri ferð liggur mikil vinna víða innan fyrirtækisins. Reynsla og þekking starfsmanna hefur komið að sérstaklega góðum notum, hvort sem er við uppfærslu á farþegarými eða við skipulagningu ferðanna, sérstaklega þar sem oft er flogið á frumstæðar og framandi slóðir. Á undanförnum árum hafa vélar Icelandair heimsótt sjö heimsálfur í sambærilegum leiguflugum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …