Samfélagsmiðlar

Fella niður 81 flugferð til Keflavíkurflugvallar

Tékkneska flugfélagið gerir hér hlé á Íslandsflugi sínu strax eftir áramót en tekur upp þráðinn að nýju í lok mars. Félagið hefði staðið undir um tveimur af hverjum 100 brottförum á fyrsta fjórðungi næsta árs.

czech airlines

Frá því haustlok hefur tékkneska flugfélagið Czech Airlines boðið upp á heldur óvenjulegt áætlunarflug til Íslands. Þoturnar fljúga nefnilega Prag til Kaupmannahafar og þaðan áfram til Íslands. Lent er á Keflavíkurflugvelli seint um kvöld og brottför þaðan til Kaupmannahafnar klukkan hálf fimm morguninn eftir. Farþegar geta því valið hvort þeir fljúga aðeins til Kaupmannahafnar eða haldi alla leið til Prag.

Þessar ferðir hafa verið í boði daglega og fargjöldin nokkru lægri en til að mynda í flugi Icelandair og SAS til Kaupmannahafnar. Nú sér hins vegar fyrir endann á þessum flugferðum því stjórnendur tékkneska félagsins hafa fellt niður allar ferðir frá 7. janúar næstkomandi. Þetta staðfestir talskona félagsins í svari til Túrista. Hún bendir á að Czech Airlines muni byrja að fljúga til Íslands á ný í lok mars og þá beint frá Prag án millilendingar í Kaupmannahöfn.

Dagskrá Keflavíkurflugvallar á fyrsta fjórðungi næsta árs gerði ráð fyrir áframhaldandi daglegu flugi tékkneska flugfélagsins og hefði félagið þá staðið undir um 2 prósentum af öllu áætlunarflugi héðan þessa fyrstu þrjá mánuði ársins. Niðurfelling á öllum þessum ferðum hefur því þónokkur áhrif og því útlit fyrir að fjöldi áætlunarferða á þessu tímabili verði um 23 prósent lægri en á sama tíma í ár. Það er meira en fram kom í nýrri úttekt Túrista yfir flugumferð til og frá landinu byrjun næsta árs.

Sú samantekt hefur verið uppfærð en ítarlegri greining á því hvernig flugframboð breytist milli landa og áfangastaða verður send síðar í dag til þeirra sem styrkja útgáfu Túrista með mánaðarlegum framlögum.

Farþegar sem áttu bókaða miða í ferðir Czech Airlines til Prag eða Kaupmannahafnar munu fá tilkynningu frá flugfélaginu og miðar þeirra endurgreiddir.

Nú getur þú tekið þátt í að styrkja og efla útgáfu Túrista

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …