Samfélagsmiðlar

Þurfa að fella niður flugferðir vegna takmarkana við sýnatökur

Afkastageta við skimun flugfarþega vegna Covid-19 hefur ekki verið aukin í takt við fjölgun áætlaðra flugferða. Þar með þarf að draga úr umferð um Keflavíkurflugvöll.

Aflýsa þarf nokkrum áætlunarflugum á degi hverjum til Keflavíkurflugvallar frá og með næstu viku. Ástæðan er sú að áfram takmarkast fjöldi sýnataka á Keflavíkurflugvelli, vegna Covid-19, við tvö þúsund á dag.

Hingað til hefur flugumferðin verið það takmörkuð að þessu hámarki hefur ekki verið náð. Frá og með næstu viku horfir þó öðruvísi við því þá fjölgar ráðgerðum áætlunarferðum hingað þónokkuð. Þar með stefnir í að farþegafjöldinn fari nokkuð yfir tvö þúsund á dag.

Stjórnendum þeirra flugfélaga sem halda úti flugi til og frá Keflavíkurflugvelli hefur því verið tilkynnt að fella þurfi niður hluta af fluginu hingað til lands strax í næstu viku samkvæmt heimildum Túrista. Ekki mun þó liggja fyrir hvaða ferðir verða felldar niður eða hvaða aðferðum verður beitt við þá vinnu.

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, boðaði í gær breyttar áherslur við landamæraskimun frá og með næstu mánaðamótum. Þá væri hægt að hleypa fleirum inn í landið en nú er gert.

Í dag er Ísland eina opna landið í Evrópu þar sem gerð er krafa um að allir þeir sem koma til landsins gangist undir smitpróf. Sum ríki í álfunni takmarka þó ferðamannastrauminn við sérvalin ríki.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …