Andri Már Ingólfsson, stofnandi Heimsferða og fyrrum eigandi Primera Air, segir frá því í gær að hann hefði samið við danskt flugfélag um að fljúga farþegum nýju ferðaskrifstofunnar sinnar, Aventura, til Spánar frá Íslandi á næsta ári.
Í ferðirnar verða nýttar 118 sæta Embraer flugvélar og hefur Mbl.is það eftir Andra Má að það sé fullkomin stærð fyrir íslenska markaðinn. Það kemur þó ekki fram í fréttinni hvað danska flugfélagið heitir.
Á heimasíðu Aventura má þó finna flug til Spánar næsta sumar með flugfélagi sem notast við kóðann DW. Sá kóði tilheyrir danska flugfélaginu Great Dane og í flota þess félags eru einmitt Embraer þotur með sæti fyrir 118 farþega. Ekkert annað danskt flugfélag notast við þess háttar þotur samkvæmt því sem Túristi kemst næst. Það fæst þó ekki staðfest hjá Great Dane að félagið ætli að ferja farþega Aventura til Spánar næsta sumar.
Spurður um hvaða flugfélag samið hafi verið við þá segir Andri Már, í svari til Túrista, að Aventura tjái sig ekki um einstaka samninga félagsins þar sem þeir eru trúnaðarmál. Andri Már upplýsti engu að síður Túrista í vor um að hann hefði samið við tékkneska flugfélagið Smart Wings um flug til Kanaríeyja nú í vetur. Ferðir milli Íslands og Spánar hafa hins vegar legið niðri síðustu mánuði.
Einn stærsti viðskiptavinur Great Dane flugfélagsins er ferðaskrifstofan Bravo Tours. Sú tilheyrði Primera Travel Group sem var eigu Andra en Arion banki tók yfir sumarið 2019.
Í dag er Arion banki meirihlutaeigandi Bravo Tours eftir að hafa keypt vörumerkið út úr þrotabúi TravelCo Nordic en það félag var alfarið í eigu bankans.
Af heimasíðu Bravo Tours að dæma þá ætlar ferðaskrifstofan að halda áfram að bjóða upp á ferðir með Great Dane frá Danmörku næsta sumar. Nú er að sjá hvort félagið muni líka fljúga farþegum Aventura frá Íslandi til Spánar