Samfélagsmiðlar

Þotur Icelandair komu Norwegian á flug

Viðskipti með hlutabréf Norwegian voru stöðvuð í kauphöllinni í Ósló í dag. Nú er beðið eftir frekari upplýsingum frá félaginu um stöðu mála. Norwegian hefur verið einn helsti keppinautur Icelandair síðustu ár.

Dreamliner þota Norwegian

„Icelandair er mjög gott fyrirtæki með færa stjórnendur og ég tel að við munum aðeins stækka markaðinn […] en ekki bola Icelandair burtu”, sagði Bjørn Kjos, þáverandi forstjóri Norwegian og stofnandi, í viðtali við Túrista haustið 2013.

Þegar þarna var komið við sögu var Norwegian, fyrst evrópskra lággjaldaflugfélaga, að hefja flug til Bandaríkjanna. Í þá útgerð nýtti félagið Boeing Dreamliner þotur og þar af þrjár sem upphaflega voru keyptar af FL-Group, þáverandi móðurfélagi Icelandair.

Norwegian gekk inn í pöntunina hjá Boeing árið 2011 þegar fjárhagsleg endurskipulagning Icelandair stóð yfir. Tveimur árum síðar hófst stórsókn Norwegian inn á bandaríska markaðinn og þá með þotunum þremur frá FL-Group.

Segja má að fljótlega hafi Icelandair fundið fyrir þessari hörðu samkeppninni því fargjöld Norwegian voru lág og félagið bauð upp á töluvert af flugi frá Skandinavíu til Bandaríkjanna. Icelandair nefnilega lengi gert út á fólksflutninga frá hinum Norðurlöndunum og vestur um haf.

Norwegian fór líka inn á flugleiðir þar sem Icelandair hafði verið eina norræna flugfélagið, til að mynda í Denver og Seattle. Einnig hóf félagið flug til Flórída og Boston og varð umsvifamesta evrópska flugfélagið á JFK flugvelli í New York.

Fjárhagsstaða Norwegian hefur þó lengi verið þung og í vor tóku kröfuhafar félagið yfir. Sú breyting dugar þó ekki til að koma félaginu í gegnum veturinn eins og fram hefur komið í máli stjórnenda fyrirtækisins.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …