Samfélagsmiðlar

260 þúsund farþegar frá Íslandi til Tenerife

Árið 2005 flugu rúmlega fimm hundruð manns frá Íslandi til Tenerife. Strax árið eftir margfaldaðist fjöldinn og síðustu ár hafa þúsundir haldið héðan til eyjunnar í hverjum mánuði.

Orotava dalurinn á Tenerife.

Það er margra áratuga hefð fyrir vetrarferðum Íslendinga til Gran Canaria eða Kanarí. Ferðalög landans til Kanaríeyjunnar Tenerife eiga sér hins vegar ekki eins langa sögu því það var fyrst í lok árs 2005 sem í boði voru reglulegar ferðir þangað frá Íslandi.

Það var hin nýstofnaða ferðaskrifstofa Sumarferðir sem reið á vaðið og eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan þá voru viðtökurnar góðar. Aðrar ferðaskrifstofur fylgdu í kjölfarið og í árið 2006 flugu rúmlega 11 þúsund manns frá Íslandi til eyjunnar.

Fjöldinn fór upp í nærri 18 þúsund árið 2008 en eftir efnahagshrunið fækkaði íslenskum ferðamönnum á spænsku eyjunni.

Segja má að nýr kafli í ferðum Íslendinga til Tenerife hefjist í mars árið 2015. Þá hóf WOW air áætlunarflug til eyjunnar og árið eftir var félagið farið að fljúga tvisvar í viku til eyjunnar. Framboðið jókst líka hjá stærstu ferðaskrifstofunum.

Árið 2018 var svo metár en þá komu nærri 44 þúsund farþegar til Tenerife í flugi frá Íslandi. Þeim fækkaði svo í fyrra en WOW air varð gjaldþrota í mars það ár. Um haustið hóf Norwegian svo að fljúga milli Tenerife og Íslands og náði félagið strax sextíu prósent hlutdeild á markaðnum enda með mjög tíðar ferðir á boðstólum.

Samtals hafa 260 þúsund farþegar flogið héðan til Tenerife frá árinu 2005 til 2019.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …