Samfélagsmiðlar

Fjöldi flugmanna gæti þurft að halda sér við fyrir eigin reikning

Það kostar flugmenn umtalsverðar upphæðir að halda sér við nú þegar margir þeirra eru án vinnu.

Frá þjálfunarmiðstöð Icelandair í Hafnarfirði.

Frá og með áramótum verður aðeins 71 flugmaður á launaskrá Icelandair. Til samanburðar voru þeir 562 sumarið 2019 en stjórnendur Icelandair hafa gefið út að umsvif flugfélagsins næsta sumar eigi að vera rétt um fjórðungi minni en í hittifyrra.

Ef það á að ganga eftir þá ætti félagið að þurfa að endurráða fjölda flugmanna á næstunni. Þeir sem ekki fá vinnu verða þá að bera kostnaðinn sjálfir við að halda sér við.

Og það gera margir til að eiga betri möguleika á nýju starfi segir Hörður Þorvaldsson hjá V-one, fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjálfun og ráðgjöf fyrir flugmenn og flugfélög á alþjóðavísu. V-one var stofnað nýverið af teymi þjálfunarflugstjóra Icelandair.

„Flugmenn þurfa að hafa LPC próf, License proficiency check, sem er tekið í flughermi og gildir í tólf mánuði. Þess háttar próf kostar í dag um 1800 dollara (um 230 þúsund kr.) og til viðbótar er gerð krafa um þrjár lendingar á síðustu níutíu dögum. Í ljósi þess hve langt er liðið frá fyrstu hópuppsögnunum þá er ljóst að margir flugmenn uppfylla ekki þetta skilyrði. Þá þarf að kaupa sér tíma aukalega í flughermi fyrir lendingarnar,“ segir Hörður.

Hann bendir jafnframt á að flugmenn verði að gangast undir ítarlega læknisskoðun hvert ár og hana þarf þá einnig að borga úr eigin vasa.

„Þeir flugmenn sem verða endurráðnir fyrir sumarið fara þó væntanlega í endurþjálfun á kostnað Icelandair,“ bætir Hörður við og segir að Icelandair hafi staðið sig mjög vel þegar kemur að þjálfunarmálum flugmanna.

Til marks um það þá rekur félagið sitt eigið þjálfunarsetur og er með flugherma fyrir allar þær gerðir flugvéla sem félagið notar. „Það hefur verið mikill metnaður og framsýni þar,“ segir Hörður að lokum.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …