Samfélagsmiðlar

Sóttu um fleiri lendingarleyfi en áður þrátt fyrir niðurskurð

Vegna heimsfaraldursins þá gætu flugfélög fengið undanþágu frá nýtingu á öllum þeim lendingarleyfum sem þeim hefur verið úthlutað fyrir næsta sumar. Félögin eiga þá rétt á sömu tímum sumarið 2022 og næstu ár þar á eftir.

Þotur Icelandair við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Í komandi sumaráætlun Icelandair er gert ráð fyrir að heildarsætaframboð félagsins dragist saman um 25 til 30 prósent í samanburði við sumarið 2019. Engu að síður sótti Icelandair um ríflega helmingi fleiri lendingarleyfi eða slott á Keflavíkurflugvelli fyrir næsta sumar en félagið hafði áður en heimsfaraldurinn braust út.

Í heildina er Icelandair með um 37 þúsund slott fyrir sumaráætlunina 2021 samkvæmt heimildum Túrista. Fyrir sama tímabil árið 2019 sótti félagið um ögn færri lendingarleyfi eða 36 þúsund en notaði tæplega 20 þúsund þegar upp var staðið.

Sumarið 2020 var ætlunin að fjölga slottunum um fimmtán af hundraði en vegna útbreiðslu Covid-19 urðu umsvifin miklu minni.

Spurð um skýringar á þessum fjölda umsókna á lendingarleyfum fyrir næsta sumar þá segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, að þetta snúist um að viðhalda verðmætum afgreiðslutímum á flugvöllum erlendis. 

Það liggur þó fyrir að umsóknir á lendingarleyfum fyrir komandi sumar gæti haft gildi til langrar framtíðar. Ástæðan er sú að vegna heimsfaraldursins þá er til skoðunar að fella niður kröfuna um að flugfélög nýti hvert og eitt lendingarleyfi í að minnsta kosti áttatíu prósent tilvika næsta sumar. Þess háttar undantekning var gerð fyrir síðasta sumar og aftur nú í vetur.

Ef fallið verður frá þessari nýtingakröfu þá situr Icelandair áfram á stærstum hluta allra slotta á háannatíma, þ.e. milli klukkan 7 og 9 á morgnana og 16 og 18 seinnipartinn.

Í því samhengi má rifja upp að forsvarsmenn WOW kvörtuðu árangurslaust á sínum tíma undan skorti á brottfarar- og lendingartímum á morgnana og seinnipartinn. Flugfélagið Delta hætti líka við áætlunarflug hingað sumarið 2015 vegna plássleysis á þessum háannatímum.

Forsvarsmenn Icelandair eru þó ekki þeir einu sem hafa sótt um mun fleiri lendingarleyfi en þeir koma til með nota. Því líkt og Túristi greindi frá nýverið á þá óskaði Play eftir álíka mörgum tímum fyrir næsta sumar og WOW air fékk fyrir sumarið 2019. Þá hafði WOW air ellefu Airbus þotur til ráðstöfunnar en Play er ennþá ekki komið með eina einustu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …