Samfélagsmiðlar

Ekkert sem gefur til kynna að ganga þurfi fyrr á lánalínu ríkisins

Það eru litlar vísbendingar um að eftirspurn eftir ferðalögum sé að aukast. Spá stjórnenda Icelandair gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður félagsins nemi um 2,3 milljörðum króna á mánuði nú í ársbyrjun.

Líkt og hjá Icelandair þá var efnt til hlutafjárútboða hjá Finnair, SAS og IAG, móðurfélagi BA og fleiri félaga, í fyrra. Til viðbótar gengu þessi þrjú félög öll frá lánagreiðslum fyrir lok síðasta árs. Finnair fékk pening frá finnska ríkinu, SAS frá því norska og IAG á almennum markaði.

Í tengslum við samþykkt Alþingis á 120 milljón dollara láni (15,3 milljarðar kr.) til Icelandair Group sl. haust þá var haft eftir forsvarsmönnum flugfélagsins að ef eftirspurn taki ekki við sér og umsvifin verði áfram í lágmarki þá myndi félagið draga á lánalínuna með sumrinu eða haustinu í ár.

Spurð hvort útilokað sé að Icelandair þurfi að ganga á lánalínu ríkisins fyrir sumarið, í ljósi þess að félagið má aðeins taka út 20 milljónir dollara á mánuði, þá segir Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, að ekkert hafi komið til sem kalli á kauphallartilkynningu. Hún segir það farveginn til að upplýsa um þessi mál.

Í tengslum við uppgjör Icelandair fyrir fyrstu níu mánuði síðasta árs þá sagði að lausafjárstaða félagsins næmi 399 milljónum dollara í lok september síðastliðinn (55 milljarðar kr. á þáverandi gengi). Lánalínan frá ríkinu var hluti af þeirri upphæð.

Spá stjórnenda Icelandair gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður fyrirtækisins, frá byrjun október 2020 til loka mars 2021, nemi samtals um 126 milljónum dollara. Á öðrum fjórðungi þessa árs verður kostnaðurinn samtals 88 milljónir dollara samkvæmt spánni sem birt var í kynningu í tengslum við hlutafjárútboðið í haust.

Á þeim fjórðungi er reyndar búist við fjórfalt meira sætisframboði á mánuði en núna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Ekki er að finna spá um framboð á þriðja fjórðungi ársins en í ljósi þess að ennþá er bið eftir því að eftirspurn glæðist þá eru vísbendingar um að framboð í sumar verði takmarkaðra en gert er ráð fyrir í næstu sumaráætlun Icelandair.

En líkt og Túristi hefur áður fjallað um þá hefur árstíðarsveiflan í rekstri Icelandair verið töluvert meiri en keppinautanna. Félagið á því meira undir sumarvertíðinni komið.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …