Samfélagsmiðlar

Írska útgáfan af Icelandair boðar sókn í flugi milli Bretlands og Bandaríkjanna

Yfirlýst markmið stjórnenda Aer Lingus er að verða leiðandi í sínum flokki flugfélaga í ferðum yfir Norður-Atlantshafið.

Aer Lingus ætlar að nýta Airbus A321LR þotur í flug sitt yfir Atlantshafið. Þær þotur eru langdrægari en aðrar þotur í sama stærðarflokki.

Segja má að Icelandair og írska flugfélagið Aer Lingus eigi tvennt sameiginlegt. Í fyrsta lagi hafa stjórnendur þeirra beggja skilgreint þau sem flugfélög sem eru mitt á milli hefðbundinni félaga og svo lágfargjaldafélaga. Þannig hefur írska félagið lengi notað heitið „value airline“ í sínu markaðsefni. Og á hluthafafundi Icelandair í síðastliðið vor talað um flugfélagið sem „value for money airline“ eða flugfélag sem er peninganna virði.

Flugfélögin tvö eiga það svo líka sameiginlegt að gera sérstaklega mikið út á tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku. Þannig flýgur Aer Lingus sínum farþegum til Dublin og svo þaðan til fjölda áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada.

Nú ætlar Aer Lingus sér ennþá stærri hluta af þessum markaði. Því vor áformar félagið að setja upp starfsstöð í Manchester á Englandi og fljúga þaðan til Boston, New York og Orlando. Allt eru þetta borgir sem eru hluti af leiðakerfi Icelandair.

Þannig hafa íbúar Manchester lengi getað flogið með Icelandair til Keflavíkurflugvallar og svo þaðan til Bandaríkjanna. Á sama hátt hafa íbúar Bandaríkjanna, á leið til Manchester, haft kost á því að fljúga með Icelandair yfir Norður-Atlantashafið.

Og vísbendingar eru um að staða Icelandair hafa veikst í Seattle með tilkomu Aer Lingus til bandarísku borgarinnar líkt og Túristi rakti nýverið.

Aer Lingus er hluti af IAG flugfélagasamsteypunni en þar er British Airways stærsta félagið. Þrátt fyrir tengslin þá mun írska flugfélagið nú hefja áætlunarflug frá Bretlandi til Bandaríkjanna.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …