Samfélagsmiðlar

211 færri ferðir í haust á vegum erlendra flugfélaga

Það eru sæti fyrir á bilinu 150 til 180 þúsund farþega í þotunum sem erlend flugfélög ráðgera að fljúga til Keflavíkurflugvallar í haust. Framboðið hefur dregist saman frá 2019.

Það er ennþá von til þess að komandi sumar verði skaplegt í ferðaþjónustunni en margir horfa þó frekar til þess að viðspyrnan hefjist í raun í haust. Á þeim tímapunkti verði bólusetningar komnar langt og fólk getur því skipulagt ferðalög með góðum fyrirvara.

Eins og staðan er í dag eru nítján erlend flugfélög með áætlunarflug til Keflavíkurflugvallar á boðstólum í sumar. Öll nema fjögur þeirra gera ráð fyrir Íslandsflugi í haust líka.

Ferðirnar verða þó nokkur færri en haustið 2019 eins og áætlanirnar eru núna. Samdrátturinn í september nemur nítján prósentum og sextán prósentum í október samkvæmt talningum Túrista.

Mest munar þar um fyrirséðan niðurskurð í Íslandsflugi Norwegian og eins hefur easyJet dregið úr. Það munar líka um að ekkert verður af ferðum American Airlines til Keflavíkurflugvallar í ár. Hið þýska Lufthansa ætlar heldur ekki að fljúga sínum þotum eins oft hingað í haust og gert var á sama tíma 2019.

Í heildina þá stefnir í að Wizz Air standi undir um fjórðu hverri ferð erlendra flugfélaga til Íslands í september og október og verði þar með lang umsvifamest í þeim hópi.

Þegar horft er til þeirra félaga sem bæta við ferðum til Íslands frá haustinu 2019 þá munar mestu um nýjar áætlunarferðir Jet2 til Íslands frá nokkrum breskum flugvöllum. Transavia, Czech Airlines og Air Baltic hyggjast einnig bjóða upp á tíðari ferðir en fyrir tveimur árum síðan.

Í ljósi óvissunnar sem ennþá ríkir um framgang bólusetninga og sóttvarnaraðgerðir við landamæri þá má búast við að flugáætlanir eigi eftir að taka breytingum á næstu mánuðum. Túristi heldur áfram að fylgjast náið með þeirri framvindu.

Nýtt efni

Ég hitti dræverinn minn við terminalinn í Keflavík. Hann var að koma úr transferi  frá Selfossi. Ég spurði  hvort hann væri á Sprinternum, „Nei ég er á nýja Benzinum  hjá  Ice-eitthvað. En hvað eigum við að taka marga pax spurði hann og eru allir með vácera eða eiga þeir að borga kontant?“  Daman á deskinum …

Nú eru 10 þotur á vegum Play í háloftunum en þær voru sex fyrir ári síðan. Umsvifin hafa því aukist  um meira en helming og í nýliðnum nóvember flutti félagið 107 þúsund farþega. Það er viðbót um 42 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðbótin er minni en sem nemur auknu framboði og sætanýtingin var …

Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar …

Vefmiðillinn Túristi hóf sitt ferðalag fyrir 14 árum en í dag birtist hann lesendum undir nýju nafni og í breyttum búningi, sem ekki er þó fullskapaður heldur í mótun: FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verða ferðamál í öndvegi en leitað fanga víðar, birtar áhugaverðar og skemmtilegar frásagnir af ýmsu tagi og fréttir …

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Aðlögunarhæfni er meðal helstu styrkleika ferðaþjónustunnar. Það sýndi hún vel í kórónaveirufaraldrinum og það á örugglega eftir að reyna á þennan eiginleika aftur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, kom inn á þetta í ávarpi sínu á morgunfundi SAF og SA um skattspor ferðaþjónustunnar. Ekki er langt síðan Þórdís Kolbrún gegndi starfi utanríkisráðherra og …

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, kynnti niðurstöður skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir SAF um skattspor ferðaþjónustunnar - um það hvert raunverulegt framlag hennar er til samfélagsins. Byggt er á tölum frá 2022 og er meginniðurstaðan sú að skattspor ferðaþjónustunnar hafi verið rúmir 92 milljarðar króna en rúmir 155 milljarðar ef virðisaukaskattur er meðtalinn. Þetta eru …

Þessar breytingar á álögum á skemmtiferðaskipin sem koma til Grænlands taka gildi 1. janúar 2024. Við gerð fjárlaga síðasta árs náðist samkomulag milli flokkanna á grænlenska þinginu um að hefja að nýju innheimtu farþegagjalda. Hafnargjald var látið leysa farþegagjald af hólmi árið 2015. Vegna fjölgunar skemmtiferðaskipa og álagsins sem fylgir komum þeirra fyrir lítil samfélög …

norwegian vetur

„Umferðin í nóvember er alla jafna minni og líka í janúar og febrúar. Þú hefur þá um tvennt að velja. Fljúga með óbreyttum hætti, lækka verðið og fljúga hálftómum þotum. Hinn kosturinn er að minnka framboðið og spara pening. Áður fyrr valdi Norwegian fyrri leiðina en nýir stjórnendur hafa kosið seinni kostinn," sagði Svein Harald …