Samfélagsmiðlar

Ítölsku túristarnir komu þrátt fyrir allt og eyddu nærri milljarði króna

Ítalía fór mjög illa út úr fyrstu bylgju COVID-19 og Icelandair felldi niður allar ferðir sínar til Mílanó um sumarið. Wizz Air tók við keflinu og ítalskir ferðamenn voru fjölmennir hér á landi síðla sumars. Kortavelta hvers og eins þeirra jókst frá sumrinu 2019.

Frá Akureyri en í ágúst í fyrra þá stóðu Ítalir undir ellefu prósent allra gistinátta útlendinga á hótelum á Norðurlandi.

Þó Ítalía hafi aldrei lokað landamærum sínum í upphafi heimsfaraldursins í fyrra þá giltu þar takmarkanir um ferðalög milli héraða fram á byrjun síðasta sumars. Hingað skiluðu sér því fáir ítalskir ferðamenn í júlí eða rétt rúmlega níu hundruð manns samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Samdrátturinn nam 83 prósentum frá júlí árið 2019.

Staðan breyttist hins vegar til hins betra í ágúst því þá voru hér tæplega átta þúsund Ítalir. Fækkunin frá sama tíma árið áður var þá rétt um fjörutíu prósent. Til samanburðar fækkaði frönskum ferðamönnum á Íslandi um 77 prósent ágúst og þeir spænsku voru helmingi færri.

Bættu við fjórðu vikulegu ferðinni

Þessi góða viðspyrna Íslands sem áfangastaðar á ítalska markaðnum, í lok síðasta sumars, er meðal annars áhugaverð fyrir þær sakir að Icelandair felldi niður allar ferðir sínar til Mílanó í fyrra.

Wizz Air fór hins vegar jómfrúarferð sína til Keflavíkurflugvallar frá ítölsku borginni í byrjun júlí. Og í ágúst fjölgaði félagið með stuttum fyrirvara ferðum sínum úr þremur í fjórar í viku.

Það er til marks um að eftirspurnin hefur farið fram úr væntingum og samtals flugu þotur Wizz Air sautján ferðir til Íslands frá Mílanó síðastliðinn ágúst. Icelandair flaug einmitt jafn oft til borgarinnar þennan sama mánuð árið 2019 samkvæmt talningum Túrista.

Eyddu fleiri krónum

Samtals nam kortavelta Ítala hér á landi í ágúst í fyrra 957 milljónum króna. Það jafngildir nærri 125 þúsund á hvern og einn þeirra og er fjögur prósent hærri upphæð en á sama tíma í hittifyrra. Krónan var þó veikari síðastliðið sumar.

Hafa ber í huga að í þessum áætlunarferðum Wizz Air og Icelandair frá Mílanó hafa ekki nógu mörg sæti fyrir alla þá ítölsku ferðamenn sem til Íslands koma. Margir þeirra millilenda því á leiðinni hingað og það hefur til að mynda komið fram í viðtölum Túrista við forsvarsmenn Lufthansa að Íslandsflug þess félags er vel nýtt af ítölskum ferðamönnum.

Svo má ekki gleyma að Ítalir eru taldir sem ítalskir ferðamenn þó þeir búi í raun í allt öðru landi.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …