Fyrstu þrjár vikurnar í mars gerir Icelandair ráð fyrir áætlunarflugi til sjö borga samkvæmt uppfærðri flugáætlun. Það er viðbót um þrjá áfangastaði frá því sem nú er.
Til samanburðar fóru þotur flugfélagsins til 29 borga í mars 2019.
Samdrátturinn í fjölda ferða er mismunandi eftir þessum sjö áfangastöðum í mars og þannig fækkar ferðunum til Kaupmannahafnar hlutfallslega minnst eins og sjá má á súluritinu.
Til dönsku höfuðborgarinnar er nefnilega áætlunin að fljúga daglega í næsta mánuði en á sama tíma árið 2019 voru ferðirnar að jafnaði tvær á dag. Þó ber að hafa í huga að nú í febrúar var ætlun Icelandair að fljúga einu sinni á dag til Kastrup en það hefur ekki gengið eftir.
Í mars 2019 flugu þotur Icelandair líka tvisvar á dag til Heathrow en núna eru aðeins tvær ferðir í viku á dagskrá.
Sem fyrr segir þá tekur Icelandair upp þráðinn í flugi til þriggja borga um næstu mánaðamót, þ.e. til Parísar, Stokkhólms og Frankfurt.
Fyrstu þrjár vikurnar í mars 2019 fóru þotur Icelandair í samtals 559 áætlunarflug en að þessu sinni er gert ráð fyrir 52 brottförum frá Keflavíkurflugvelli. Niðurskurðurinn nemur 91 prósenti í heildina.