Samfélagsmiðlar

Salan á Iceland Travel: Tilboð frá þessum fjórum komust áfram

Tilkynnt var í ársbyrjun að hefja ætti söluferli á Iceland Travel. Þetta er í annað sinn á jafn mörgum árum sem gerð er tilraun til að selja ferðaskrifstofuna út úr Icelandair samsteypunni. Áður hafði verið unnið að sameiningu Iceland Travel og Gray Line.

Frestur til að senda inn tilboð í ferðaskrifstofuna rann út þann 2. mars sl. og munu tíu tilboð hafa borist. Af þeim voru fjögur valin til að fara í seinni umferð.

Samkvæmt heimildum Túrista er þar um að ræða tilboð frá Kynnisferðum og hins vegar Nordic Visitor. Auk þess komst boð á vegum hóps ferðaþjónustufyrirtækja, þar á meðal Keahótelanna, áfram. Það sama gerði tilboð sem fjárfestingasjóðurinn Alfa framtak lagði fram

Þessir aðilar fá nú aðgang að öllum gögnum Iceland Travel og það gæti orðið tímafrekt ferli. Pressan á seljandanum er líka töluvert meiri en á tilboðsgjöfunum að mati viðmælenda Túrista. Bæði vegna ástandsins sem ríkir í ferðaþjónustunni og eins þeirrar staðreyndar að Alþingi setti það skilyrði fyrir ríkisláni til Icelandair Group að féð yrði aðeins nýtt í flugrekstur samsteypunnar. Ef Icelandair þarf að draga á lánalínuna þá gæti það flækt málin að vera með Iceland Travel innanborðs.

Velta ferðaskrifstofunnar lækkaði um fjörtutíu prósent milli áranna 2017 og 2019 og skýringin á því liggur meðal annars í „gjaldþroti stórs íslensks flugfélags“ samkvæmt því sem segir í fjárfestakynningu. Wow Air er þó ekki nefnt á nafn en ljóst af þessu að dótturfélag Icelandair samsteypunnar naut góðs af umsvifum flugfélags Skúla Mogensen.

Rekstrarhagnaður Iceland Travel var hins vegar mun meiri árið 2019 en árið 2017.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …