Samfélagsmiðlar

Þær fimm þjóðir sem hafa bókað flestar gistingar á Íslandi í sumar

Þó færri pantanir séu í pípunum í dag en voru fyrir heimsfaraldur þá er fólk byrjað að bóka lengra fram í tímann.

Það er margt óljóst varðandi næstu sumarvertíð í ferðageiranum.

Þetta sýna tölur Booking.com en sérfræðingar þessarar vinsælu bókunarsíðu hafa tekið saman fyrir Túrista lista yfir þær fimm þjóðir sem hafa tekið frá flestar gistingar á Íslandi í júní, júlí og ágúst í ár.

Þjóðverjar

Á listanum eru Þjóðverjar í fyrsta sæti en þeir hafa lengi verið fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi yfir sumarmánuðina þegar Bandaríkjamenn eru frátaldir. Og til marks um mögulegan ferðamannastraum frá Þýskalandi í sumar þá setti Eurowings nýverið í sölu flug til Keflavíkurflugvallar frá bæði Dusseldorf og Hamborg.

Ítalir

Næst flestar gistinætur á íslenskum gististöðum í sumar eru bókaðar á ítalska gesti. Það er vísbending um að fjöldi Ítala muni, líkt og í fyrra, setja stefnuna á Ísland í sumar. Í lok þess síðasta komu hingað fjöldamargir ítalskir ferðamenn þrátt fyrir að Icelandair hafi fellt niður allar ferðir til landsins. Þar hefur líklega vegið þungt að Wizz Air tók við keflinu í flugi frá Mílanó.

Frakkar

Frakkar eru í þriðja sæti á lista Booking.com yfir þær þjóðir sem eiga flestar gistingar bókaðar á Íslandi yfir sumarmánuðina þrjá. Sumarið 2019 komu hingað 39 þúsund franskir ferðamenn eða tvöfalt fleiri en þeir ítölsku.

Bandaríkjamenn

Ennþá er óljóst hvenær ferðalög milli Norður-Ameríku og Evrópu komast í lag á ný. Bandaríkjamenn eru engu að síður með fjölda gistinga bókaðar hér á landi næsta sumar og því í fjórða sæti á lista Booking.com. Sumarið 2019 var fjórði hver ferðamaður á Íslandi bandarískur og hlutfallið var ennþá hærra árið áður þegar Icelandair og WOW air voru í mikilli útrás vestanhafs.

Bretar

Bretar eru svo í fimmta sætinu á þessum topplista sem Booking.com tók saman fyrir Túrista. Bretar fjölmenna helst til Íslands yfir vetrarmánuðina og til marks um það flugu 34 þúsund breskir ferðamenn frá Íslandi í mars 2019. Allt sumarið 2019 voru þeir hins vegar 33 þúsund.

Ekki fást upplýsingar hjá Booking.com um hversu margar gistinætur hver þjóð hefur bókað eða hvert hlutfallið er miðað við sama tíma árið 2019.

Hafa ber í huga að ferðamenn geta í flestum tilfellum afbókað gistingu með stuttum fyrirvara en samt fengið fulla endurgreiðslu. Það á reynda orðið við á fleiri sviðum ferðaþjónustunnar, til að mynda í flugi.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …