Samfélagsmiðlar

Geta bætt við ferðum ef eftirspurn eykst

Í sumar munu Boeing 757 þotur Delta fljúga hingað daglega frá þremur bandarískum borgum.

Bandaríska flugfélagið Delta hefur frá árinu 2011 flogið til Íslands frá New York. Nokkrum árum síðar hóf félagið að fljúga hingað frá Minneapolis og í sumar bætast við daglegar brottfarir frá Boston. Í heildina gerir félagið ráð fyrir sextíu prósent meira framboði á sætum til Íslands næstu mánuði í samanburði við sumarið í hittifyrra.

En er von á meiru og hvernig lítur veturinn út? Túristi lagði þessar spurningar og fleiri fyrir Amy Martin, framkvæmdastjóra alþjóðlegs leiðakerfis Delta.

Hvernig hefur viðtökurnar verið hjá við ferðum Delta til Íslands í sumar?

„Heilt yfir þá sjáum við fjölda jákvæðra teikna um aukna eftirspurn eftir ferðalögum í sumar, þar á meðal bókanir sem gerðar eru með meira en sextíu daga fyrirvara. Í takt við framgang bólusetninga þá er sífellt stærri hópur fólks að endurheimta fyrra líf og í huga margra eru ferðalög stór hluti af því. Við erum reiðubúin til að gera fólki kleift að upplifa á nýjan leik og Ísland hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðafólk sem er í leit að fallegum áfangastað þar sem hægt er að njóta útiveru.“

Sérðu tækifæri í að bæta við ferðum til Íslands í sumar og þá frá fleiri bandarískum borgum?

„Við munum bæta við í takt við aukna eftirspurn, það hefur verið okkar nálgun í heimsfaraldrinum.“

Aðeins þeir sem hafa verið bólusettir geta ferðast til Íslands án þess að þurfa í sóttkví. Endurspeglast það í þeim bókunum sem eru komnar?

„Við áttum allt von á meiri eftirspurn frá almennum farþegum á leið í frí nú í sumar og það á líka við um flugið okkar til Íslands. Við munum tryggja að viðskiptavinir okkar séu meðvitaðir um þeir kröfur sem gerðar eru á hverjum áfangastað, til dæmis hvað varðar bólusetningar, sóttkví, skimanir o.s.frv. Af þeim sökum höfum við hannað stafrænan ferðaskipuleggjara sem eyðir óvissunni í kringum ferðalögin og gerir fólki auðveldara að skipuleggja ferðir.“

Hafið þið ákveðið hvort Ísland verði hluti af áætlun Delta næsta vetur?

„Það er of snemmt að setja til um það en við munum fylgjast með eftirspurninni og aðlaga áætlun okkar að henni.“

Líkt og fram kom í nýlegri samantekt Túrista þá eru á boðstólum rúmlega 22 þúsund flugsæti frá Bandaríkjunum til Íslands í sumar. Af þeim er Delta með um 8 þúsund sæti og Icelandair um 14 þúsund.

.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …