Samfélagsmiðlar

36 flugmenn endurráðnir fyrir helgi

Fjöldi flugmanna hjá Icelandair nú í sumarbyrjun gefur vísbendingu um að umsvif félagsins verði töluvert minni en lagt var upp með.

Þegar áætlun Icelandair fyrir komandi sumar var fyrst kynnt þá var gert ráð fyrir að heildarsætaframboð yrði um 25 til 30 prósent minna en sumarið 2019. Það sumar störfuðu 562 flugmenn hjá félaginu og miðað við boðuð umsvif hefði sá hópur þurft að telja hátt í fjögur hundruð flugmenn að þessu sinni.

Núna er 221 flugmaður á launaskrá flugfélagsins. Þar eru meðtaldir þeir 36 flugmenn sem endurráðnir voru í gær samkvæmt upplýsingum frá Icelandair. Ekki voru fleiri flugfreyjur eða flugþjónar kallaðir til starfa að þessu sinni en nýverið voru 104 ráðnir í þau störf.

Eins og gefur að skilja þá er fjöldi flugmanna góð vísbending um komandi framboð á flugferðum. En líkt og Túristi benti nýverið á þá gerir uppfærð áætlun Icelandair fyrir júní ráð fyrir rétt um fjórðungi af þeim fjölda ferða sem var á boðstólum í júní 2019 eða rétt um þrettán brottförum á dag að jafnaði.

Miðað við stærð flugmannahópsins núna þá gæti sú tala hækkað upp í rétt rúmlega tuttugu brottfarir á degi hverjum þegar líður á sumarið.

Til samanburðar þá flugu þotur Icelandair daglega 55 ferðir að meðaltali frá Keflavíkurflugvelli í júlí 2019 samkvæmt talningu Túrista. Umsvifin að þessu sinni verða þá rétt um 40 prósent af því sem var miðað við stöðuna í dag.

Stjórnendur Icelandair eru síður en svo þeir einu í fluggeiranum sem hafa þurft að draga úr væntingum fyrir komandi sumar. Skýringin er sú að ferðatakmarkanir eru ennþá almennar víða um heim og ekki liggur fyrir hvenær bandarísk og kanadísk stjórnvöld opna sín lönd fyrir ferðamönnum.

Það auðveldar heldur ekki skipulagninguna að nú bókar fólk með stuttum fyrirvara. Á þetta bentu forráðamenn SAS á fyrr í vikunni þegar félagið upplýsti að nú yrði dregið á 45 milljarða króna lánalínu frá dönskum og sænskum stjórnvöldum.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …