Samfélagsmiðlar

Sumarfargjöldin lækkað í 9 af hverjum 10 tilvikum

Icelandair hefur fellt niður stóran hluta af ferðum sínum í júní. Og farmiðaverðið í júlí og ágúst hefur lækkað samkvæmt könnunum Túrista.

Farþegum Icelandair er vanalega skipt í þrjá hópa; Íslendinga á leið til útlanda, erlenda ferðamenn og svo þá sem millilenda á Keflavíkurflugvelli á leið sinni milli Norður-Ameríku og Evrópu. Síðastnefndi hópurinn hefur vanalega verið sá fjölmennasti hjá flugfélaginu.

Ennþá eru Bandaríkin og Kanada lokuð fyrir ferðamönnum og einnig eru takmarkanir á ferðum inn fyrir evrópsk landamæri. Þessar ferðahömlur endurspeglast í þróun fargjalda Icelandair á milli helstu áfangastaða félagsins í Evrópu og Norður-Ameríku nú í sumar. Þau hafa nefnilega lækkað í níu af tíu tilvikum.

Þetta sýnir samanburður á verðkönnunum sem Túristi gerði þann 24. febrúar sl. og aftur í dag. Þar voru skoðuð fargjöld á fimm flugleiðum á tveimur mislöngum tímabilum í júlí og ágúst.

Lækkunin er ekki mikil eins og sjá má hér fyrir neðan en hafa verður í huga að í eðlilegu árferði hefðu fargjöldin fyrir komandi sumar hækkað umtalsvert síðustu þrjá mánuði.

Þess ber að geta að í könnun Túrista í febrúar voru líka skoðuð fargjöld hjá Icelandair í júní. Nú hefur flugfélagið hins vegar fellt niður stóran hluta af áætlun sinni í júní og þar á meðal þær ferðir sem Túristi skoðaði í könnuninni í febrúar.

Það er þó ekki bara Icelandair sem hefur fækkað ferðum og lækkað fargjöldin. Því samkvæmt athugun Túrista hefur verð á beinu flugi, milli ofangreindra stórborga, líka lækkað. Í sjö af tíu tilvikum eru þess háttar miðar ódýrari í dag en þeir voru í febrúar.

En eins og komið hefur fram í máli forsvarsfólks Icelandair þá er félagið verðtaki á markaðnum. Lækkun á beinu flugi setur nefnilega pressu á fargjöld flugfélaga sem gera út á tengiflug og þeim flokki tilheyrir Icelandair.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …