Samfélagsmiðlar

Skortur á bílaleigubílum skrifast ekki aðeins á aukna eftirspurn ferðamanna

Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar/Europcar, segir ekkert að því að verið með „uppselt" í smá tíma. Það sé nefnilega mjög dýrt og óhagkvæmt að geta sagt já við öllum fyrirspurnum með nánast engum fyrirvara.

Leiguverð á bílaleigubílum fyrir sumarið hefur hækkað verulega síðustu mánuði líkt og reglulegar verðkannanir Túrista hafa sýnt. Og hjá tveimur af stærstu bílaleigum landsins eru ekki fleiri bílar á lausu nú í byrjun ágúst.

Það er til að mynda tilfellið hjá Europcar-Bílaleigu Akureyrar fyrstu vikuna í ágúst líkt og fjallað var um hér á síðunni á sunnudaginn.

„Við erum sem stendur með lokað á fleiri bókanir vegna þess að við erum fullbókuð,“ segir Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar, spurður um stöðu mála. Hann segir þó að skýringin liggi ekki bara í mikilli eftirspurn.

Lengri bið eftir nýjum bílum

„Það eru miklar tafir á afhendingum nýrra bíla frá framleiðendum vegna skorts á tölvukubbum sem eru notaðir í framleiðsluna, svokölluðum hálfleiðurum. Við eigum ennþá eftir að fá rúmlega þrjátíu prósent af bílunum okkar afhenta. Þessa stöðu má rekja til heimsfaraldursins þar sem eftirspurn eftir hálfleiðurum hefur aukist frá öðrum geirum. Þessu til viðbótar má segja að hin mikla eftirspurn, sem nú er í gangi, hafi komið fyrr en bjartsýnustu menn þorðu að vona og í raun með engum fyrirvara. Það var því erfitt að bregðast við henni á stuttum tíma,“ útskýrir Steingrímur.

Ekkert hægt að gera í stöðunni

Hann bætir því við að það sé ekkert að því að vera með „uppselt“ í smá tíma enda sé mjög dýrt og óhagkvæmt að geta sagt já við öllum fyrirspurnum sem koma jafnvel með nánast engum fyrirvara.

„Við viljum auðvitað geta uppfyllt þarfir sem flestra og það er slæmt að geta ekki tekið fleiri bókanir. En á meðan við fáum ekki fleiri bíla þá er ekkert hægt að gera í stöðunni,“ segir Steingrímur.

Betra en að bílarnir standi óhreyfðir

Hjá bílaleigu Kynnisferða, Enterprise, er staðan sú sama. Engir bílar á lausu nú í byrjun ágúst og Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, játar að það sé vissulega slæmt að vera uppseldur. Hann segir það þó betra en að hafa nánast alla bílana standandi eins og staðan hefur verið síðasta árið.

Hjá Enterprise, líkt og hjá Europcar, er skýringuna á stöðuna þó ekki aðeins að finna í eftirspurn frá ferðamönnum. Bílafloti Enterprise hafi minnkað frá því sem var fyrir heimsfaraldur og svo hafi framleiðsla á nýjum bílum tafist líkt og fram kom hér að ofan.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …