Samfélagsmiðlar

Opin fyrir því að selja ótengdum ferðaskrifstofum vildarpunkta

Viðskiptavinir Vita geta lækkað verð pakkaferða um allt að 60 þúsund krónur með notkun vildarpunkta Icelandair. Forstjóri Icelandair Group er jafnframt stjórnarformaður Vita.

Icelandair og Vita hafa bætt við fjölda ferða til Spánar næstu vikur og mánuði á sama tíma keppinautar systurfélaganna tveggja halda í óbreytta dagskrá.

Skýringin á aukinni eftirspurn hjá Icelandair og Vita liggur að miklu leyti í notkun vildarpunkta að mati Þórunnar Reynisdóttur, forstjóra Úrval-Útsýn. Hér á síðum Túrista sagði hún það galið að Icelandair niðurgreiddi ferðir Vita með þessum hætti.

Vísaði Þórunn m.a. til þess að viðskiptavinum Vita býðst nú að nota margfalt fleiri punkta en áður sem greiðslu á pakkaferðum.

Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, hafnar því að um niðurgreiðslur á pakkaferðum sé að ræða. Hún segir að öll þau fyrirtæki sem Icelandair hefur samið við um nýtingu vildarpunkta greiði fyrir þá.

Í dag er Vita eina ferðaskrifstofan sem tekur við vildarpunktum en fleirum stendur það til boða.

„Við höfum átt í viðræðum við ferðaskrifstofur í tengslum við mögulegt samstarf varðandi söfnun og nýtingu punkta í gegnum tíðina en Vita er sem stendur eini aðilinn sem innleitt hefur Vildarpunka fyrir sína viðskiptavini í samstarfi við okkur,“ segir Ásdís.

Spurð hvort þær ferðaskrifstofur geti gengið að sömu kjörum og systurfélagið Vita fær þá segir Ásdís að verðgildi vildarpunktanna sé í takt við umfang og útfærslu hvers samnings fyrir sig.

Tengsl Icelandair og Vita eru ekki aðeins sterk í gegnum eignarhaldið heldur líka stjórnun. Þannig er Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, einnig stjórnarformaður Vita. Með honum í stjórn ferðaskrifstofunnar sitja tveir af framkvæmdastjórum samsteypunnar.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …