Samfélagsmiðlar

Segir Íslendinga hafa slegið utanlandsferðum á frest

Farþegum Play í júlí fækkaði þegar leið á mánuðinn.

„Síðan kemur þessi nýja bylgja um miðjan mánuð og Íslendingar seinkuðu mikið af brottförum seinnipart júlí enda eru skilmálarnir settir upp til að leyfa það," segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Play flutti 9.899 farþega í júlí en þetta var fyrsti heili mánuðurinn í starfsemi félagsins. Sætaframboðið félagsins nam hins vegar nærri tuttugu og fimm þúsund sætum samkvæmt talningu Túrista.

Og í byrjun júlí hafði Play selt um helming allra sæta sem í boði í þeim mánuði líkt og fram kom í viðtali Morgunblaðsins við Birgi Jónsson forstjóra Play þann 1. júlí sl.

Miðað við þau orð forstjórans þá hafa í byrjun mánaðar verið bókaðir töluvert fleiri en þeir tíu þúsund farþegar sem enduðu með að nýta sér ferðir félagsins í júlí. Og þá má áætla að ekki hafi margir farmiðar selst í júlí fyrir ferðir í þeim mánuði.

Sala til Íslendinga ekki öflug seinni hluta mánaðar

Beðinn um skýringar á þessari öfugu þróun mála þá segir Birgir, í svari til Túrista, að í lok júní hafi salan inn á sumarið verið mjög sterk og það hafi sannarlega litið vel út.

„Síðan kemur þessi nýja bylgja um miðjan mánuð og Íslendingar seinkuðu mikið af brottförum seinnipart júlí enda eru skilmálarnir settir upp til að leyfa það. Að sama skapi var salan til Íslendinga ekki mjög öflug seinni hluta júlí, fyrir ferðir innan mánaðarins, vegna óvissu í tengslum við Covid,“ segir Birgir.

Forstjórinn vísar jafnframt til þess að í tengslum við hlutafjárútboð Play hafi hann sagt að væntingar til sætanýtingar væru mjög hóflegar fyrstu mánuðina. Til að mynda verið horft til helmings nýtingar í júlí.  

„Þetta endar í um 42 prósent nýtingu sem er ekki langt frà því sem ég sagði nokkrum vikum áður,“ útskýri Birgir og bendir á að framboðið hjá Play hafi verið lítið og því þurfi lítið til að sveifla hlutföllunum.

Bókanir taka við sér á ný

Sem fyrr segir þá seinkaði fjöldi farþega Play ferðum sínum í júlí og segir Birgir mikilvægt að hafa í huga að tekjurnar af þeim og hverfi ekki heldur færist bara til í tíma.

„Svona er þessi markaður þessa dagana. Þetta er ekkert sem við bjuggumst ekki við eða erum ekki tilbúin í þó vissulega væri betra ef faraldurinn væri alveg að baki. Salan hefur ekki kólnað mikið inn á síðsumarið og haustið. Svo erum við að sjá landann lifna við núna þegar jafnvægi er að komast á Covid umræðuna og áhrif litakóðunarinnar eru ekki mikil,“ segir Birgir.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …