Samfélagsmiðlar

Alicante kom mun betur út hjá Play en Tenerife og Barcelona

Sjöundi hver farþega Play í sumar flug með félaginu til og frá Alicante.

Nú er fyrsta sumarvertíð Play að baki og voru þrír af sjö áfangastöðum félagsins spænskir. Í þotunum sem flugu til og frá Alicante voru að jafnaði tvö af hverjum þremur sætum bókuð.

Samtals flutti Play 3.779 farþega á þessari leið samkvæmt tölum frá spænskum flugmálayfirvöldum. Framboðið nam 5.760 sætum samkvæmt útreikningum Túrista.

Farþegarnir voru litlu færri í flugi Play til og frá Tenerife en aftur á móti var sætaframboðið til spænsku eyjunnar meira. Nýtingin var þar með rétt um helmingur eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Barcelona kom verst út þegar horft er til fjölda farþega og sætaframboðs og sérstaklega í ágúst þegar rétt um 43 pósent sætanna voru skipuð farþegum.

Í heildina flutti Play 9.801 farþega til og frá Spáni í sumar sem þýðir að flugið til Alicante, Tenerife og Barcelona stóðu undir 36 prósentum af heildarfarþegafjölda sumarsins. Í flugferðum talið þá var vægi Spánarflugsins í starfsemi Play hins vegar 29 prósent í sumar. Sætanýtingin var líka betri í ferðunum til spænsku staðanna en hún var í heildina eins og sjá má á grafinu.

Upphaflega áætlun Play gerði ráð fyrir að sætanýtingin í ár yrði 72 prósent og farþegarnir 143 þúsund. Ekki er lengur horft til þess að umsvifin verði þetta mikil enda þyrfti félagið að fylla næstum hverja einu flugvél út árið til að ná þeirri tölu sem kynnt var í tengslum við hlutafjárútboð félagsins.

Uppgjör á Spánarflugi Icelandair samteypunnar verður birt hér á síðum Túrista síðar í dag.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …