Það hafa um 28 þúsund farþegar nýtt sér áætlunarferðir Play það sem af er ári. Sætanýtingin í júlí var rétt um 42 prósent og 46 prósent í ágúst.
Nýtingin næstu fjóra mánuði þyrfti að verða tvöfalt hærri ef markmiðið sem sett var fram í tengslum við hlutabréfaútboð félagsins ætti að nást. Í kynningu sem gefin var út þann 14. júní sl. segir nefnilega að stefnt sé að því að Play fljúgi með 143 þúsund farþega í ár.
Það þyrftu þá samtals 115 þúsund farþegar að nýta sér ferðir Play frá deginum í dag og fram til áramóta. Framboðið hjá flugfélaginu á þessu tímabili nemur hins vegar rétt um 127 þúsund sætum samkvæmt talningum Túrista.
Play þarf þá að selja níu af hverjum tíu sætum það sem eftir lifir árs til að ná upp í 143 þúsund farþega markið.
Aðspurð um hvort það sé raunhæft þá segir Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, að markmiðið sem kynnt var á fjárfestafundum i vor hafi einungis verið sviðsmynd.
„Síðan þá höfum við dregið úr framboði vegna Covid-19 sem var alltaf eitthvað sem við sáum fyrir að gæti gerst. Við stöndum ekki og föllum með skammtímasveiflum en sjáum hins vegar að eftirspurn er að aukast hressilega og lítum björtum augum til framtíðar.“