Þeir fjárfestar sem tóku þátt í hlutafjárútboði Icelandair síðastliðið haust fengu í kaupbæti rétt á fleiri hlutum í flugfélaginu síðar á fyrirfram ákveðnu gengi. Nú í sumarlok var komið að fyrstu útgáfu á þessum viðbótarhlutum. Og eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan þá hafði það þónokkur áhrif á eignahlutföllin hjá tuttugu stærstu hluthöfunum. Þannig lækkaði vægi Bain Capital Credit um nærri eitt prósentustig.
Aftur á móti hækkaði hlutur lífeyrissjóðanna Gildi, LSR og Brúar en þeir voru allir stórtækir í útboðinu í fyrra. Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Birta tóku aftur á móti ekki þátt og áttu því ekki inni nein áskriftarréttindi.
Verðið á hverjum hlut í þessari viðbótarútgáfu var 1,13 krónur en gengi bréfa Icelandair Group í kauphöllinni er núna 1,43 kr. á hlut.