Samfélagsmiðlar

Róðurinn áfram þungur hjá SAS

Stærsta flugfélag Skandinavíu gæti þurft að biðja eigendur sína um meira fé áður en veturinn er úti.

Uppgjör skandinavíska flugfélagsins SAS fyrir síðasta reikningsár, nóvember í fyrra til október í ár, liggur fyrir. Niðurstaðan er tap upp á 6,5 milljarða sænska króna fyrir skatt. Upphæðin jafngildir nærri 94 milljörðum íslenskra króna.

Ef aðeins er horft til fjórða og síðasta fjórðungs í uppgjörinu, ágúst til október, þá var tapið um 14 milljarðar kr. Tekjurnar á þessum fjórðungi voru ríflega tvöfalt hærri en á sama tíma í fyrra en 57 prósent lægri en á síðasta fjórðungi 2019.

Það er því langt í land þegar horft er til ástandsins fyrir heimsfaraldur en SAS skilaði hagnaði árin fyrir Covid-19, öfugt við Icelandair.

„Það er ánægjulegt að hin jákvæða þróun frá sumrinu hefur haldið áfram með aukinni eftirspurn og farmiðasölu. Engu að síður var árið 2021 með þeim mest krefjandi í sögu fluggeirans og ennþá er erfitt að spá fyrir um framtíðina. Fyrst og fremst vegna þróunar yfirstandandi heimsfaraldurs,“ segir Anko van der Werff, forstjóri SAS, í tilkynningu sem flugfélagið sendi frá sér í morgun.

Þar ítrekar forstjórinn það sem hann hefur áður sagt að mikilvægt sé að draga úr kostnaði með því að flytja flugreksturinn í dótturfélög, þar á meðal SAS Connect sem skráð er á Írlandi. Sú boðaða breyting hefur valdið mikilli ólgu meðal áhafna SAS sem hafa lagt pressu á skandinavíska ráðamenn að beita sér gegn áætlunum stjórnenda flugfélagsins.

Norska ríkið seldi sinn hlut í SAS árið 2018 og nú fara Danir og Svíar með stærstan hlutinn í flugfélaginu. Ríkissjóðir landanna tveggja lögðu nefnilega SAS til stóran hluta þess fjármagns sem félagið fékk í fyrra með útgáfu nýs hlutafjár og skuldabréfa.

Síðan þá hafa peningarnir streymt úr kassanum og þekktasti greinandinn í málefnum SAS, Jacob Pedersen frá Sydbank, lýsti því yfir í síðustu viku að flugfélagið þyrfti meira fé fyrr en síðar. Benti Pedersen á það yrði mögulegt gert nú í vetur á meðan heimsfaraldurinn væri ennþá í gangi því þá væri líklegra að Evrópusambandið gæfi grænt ljóst að þátttöku danska og sænska ríkisins í fjármögnunni.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …