Samfélagsmiðlar

Aukið samstarf Vita og Icelandair

Icelandair hóf áætlunarflug til Tenerife sl. vor og fleiri sólaráfangastaðir munu bætast við leiðakerfi félagsins á næstunni.

Spænska borgin Alicante bætist við leiðakerfi Icelandair á næsta ári en hingað til hafa þotur félagsins flogið þangað á vegum systurfélagsins Vita. Farmiðar til Alicante hafa því ekki verið til sölu á heimasíðu flugfélagsins heldur eingöngu hjá ferðaskrifstofunni. Á þessu verður brátt breyting á líkt og Túristi greindi frá fyrr í dag.

Með þessari uppstokkun mun Vita einbeita sér að sölu pakkaferða og sú starfsemi efld og samþætt pakkaferðum Icelandair. Enda er mikil eftirspurn eftir þess háttar þjónustu að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair Group.

„Vita hefur tryggan viðskiptavinahóp á íslenska markaðnum og hefur starfsfólkið unnið frábært starf við uppbyggingu vörumerkisins. Þegar Icelandair bætist við þá verður salan og dreifingin enn öflugri en áður. Við erum að einfalda og straumlínulaga rekstur Icelandair með þessu og styrkja tekjuöflun félagsins,” útskýrir Bogi.

Hann segir að stærsti hluti starfsemi Vita verði fluttur út skrifstofum ferðaskrifstofunnar í Skógarhlíð og yfir til Icelandair á næsta ári. Ekki kemur til uppsagna starfsfólks vegna þessara breytinga.

Bogi bendir jafnframt á að rekstur Vita og Icelandair hafi lengi verið mjög tengdur og því sé þetta í raun ekki mikil breyting. Þannig hafi til að mynda sölu- og markaðsmál ferðaskrifstofunnar verið á könnu Icelandair um töluvert skeið.

Það sem þó breytist er að hægt verður að bóka pakkaferðir á spænska áfangastaði á heimsíðu Icelandair, til dæmis flug og hótel á Mallorca. Það munu nefnilega fleiri sólaráfangastaðir en Alicante sem bætast við leiðakerfi Icelandair á fyrri hluta næsta árs.

Sumaráætlun Vita á næsta ári gerir meðal annars ráð fyrir reglulegum ferðum til Krítar og Mallorca.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …