Samfélagsmiðlar

Fækka ferðunum á ný

Þota Play við flugstöðina í Schiphol í Amterdam

Áður en ómíkrón afbrigði kórónaveirunnar kom til sögunnar þá höfðu stjórnendur Play skorið niður flugáætlun félagsins í janúar og febrúar. Sú breyting kom helst niður á ferðum til London og Berlínar. Nú hefur verið dregið enn frekar úr áformunum eftir áramót.

Ný áætlun Play gerir nefnilega ekki ráð fyrir eins tíðum brottförum til Kaupmannahafnar og Parísar í janúar og verið hefur síðustu mánuði. Til viðbótar hefur ferðunum til London og Berlínar verið fækkað enn frekar því algjört hlé verður gert á flugi til borganna tveggja frá miðjum janúar og fram í byrjun febrúar. Það sama á við um flugið til Amsterdam en Play fór jómfrúarferð sína til hollensku höfuðborgarinnar í byrjun desember.

Með þessum nýju breytingum hefur áætlun Play í janúar verið skorin niður um nærri fimmtung frá því sem var fyrr í vetur samkvæmt talningum Túrista. Ferðunum í febrúar hefur jafnframt verið fækkað.

Sætaframboð Play í janúar nemur í dag rétt rúmlega 27 þúsund sætum og félagið flytur þá um 15 þúsund farþega ef sætanýtingin verður álíka og hún hefur verið síðustu mánuði. Til samanburðar er gert ráð fyrir að félagið fljúgi að jafnaði með 72 þúsund farþega á mánuði á næsta ári samkvæmt þeirri rekstraráætlun sem birt var í tengslum við hlutafjárútboð félagsins í júní síðastliðnum.

Sú áætlun gerði ráð fyrir 143 þúsund farþegum í ár en um síðustu mánaðamót vantaði ennþá sextíu þúsund farþega upp í það markmið.

Play er ekki eina flugfélagið sem hefur skorið niður áætlun sína eftir áramót því hjá Lufthansa Group, stærstu flugfélagasamsteypu Evrópu, verður framboðið í janúar og febrúar dregið saman um 33 þúsund ferðir.

Nú í ár hafa leigugreiðslur á flugvélum Play miðast við notkun og því hefur félagið til að mynda ekki haldið út neinum ferðum á miðvikudögum þegar færri eru á ferðinni. Frá og með áramótum greiðir Play aftur á móti fulla leigu á þotunum þremur sem félagið er með í notkun í dag.


Viltu nánari upplýsingar um framboð á flugi til og frá Íslandi á fyrsta fjórðungi næsta árs? Sendu þá fyrirspurn á [email protected].

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …