Samfélagsmiðlar

Telur að fargjöldin hækki þrátt fyrir mikla samkeppni

Það hefur ekki gefið góða raun að selja vörur undir kostnaðarverði í nokkrum rekstri,” segir Birgir Jónsson, forstjóri Play um mögulega þróun farmiðaverðs.

Eitt tonn af þotueldsneyti kostar í dag um 180 þúsund krónur og hefur verðið hækkað um tæpan fimmtung frá því fyrir helgi. Þar með kostar það Play um sex milljónir króna að fylla tankinn á einni af Airbus A321neo þotum félagsins.

Það magn af eldsneyti dugar til að fljúga þotunni um það bil fjórar ferðir milli Keflavíkurflugvallar og Kaupmannahafnar. Kostnaðurinn er því um ein og hálf milljón á hvern fluglegg eða nærri átta þúsund krónur á hvern farþega ef hvert sæti er bókað.

Þegar Play hóf áætlunarflug í lok júní í fyrra var kostnaðurinn nærri helmingi lægri.

Spurður hvort og þá hvenær þessar verðhækkanir á þotueldsneyti skili sér út í verðlagið þá segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, að það liggi fyrir að miðaverð muni hækka hjá öllum flugfélögum.

„Þetta er ekkert öðruvísi en hjá öðrum fyrirtækjum sem verða fyrir svona svakalegum hækkunum á aðföngum. Hversu mikið og hversu hratt það gerist er svo önnur spurning. Framboðið er mikið því öll flugfélög eru að reyna að keyra upp eftirspurn eftir heimsfaraldur. Samkeppnin er því hörð. En það er augljóst að félögin geta ekki tekið svona miklar hækkanir á kassann yfir lengri tíma. Það hefur ekki gefið góða raun að selja vörur undir kostnaðarverði í nokkrum rekstri,” útskýrir Birgir.

Kaup á þotueldsneyti vega þungt í rekstri flugfélaga og hjá Icelandair stóð þessi liður undir 21 prósenti af heildarkostnaði fyrirtækisins á síðasta ársfjórðungi 2021. Á því tímabili var olíuverð hátt en engu að síður umtalsvert lægra en það er í dag.

Um langt árabil gerði Icelandair framvirka samninga um fast verð á um sextíu prósent af olíunotkuninni. Í dag hefur Icelandair aðeins samið um kjör á um þrjátíu prósent af eldsneytiskaupunum og borgar því dagsverð fyrir sjö af hverjum tíu tonnum sem félagið þarf. Frá og með 1. júlí hefur Icelandair eingöngu fest verðið á innan við tíund af eldsneytisþörfinni.

Play hefur hingað til keypt alla sitt eldsneyti á dagsverði en mun kynna nýja innkaupastefnu á uppgjörsfundi í lok næstu viku.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …