Samfélagsmiðlar

Hafa selt fasteignina við Klettagarða

airportexpress

Rúta Gray Line við Keflavíkurflugvöll en félagið heldur úti daglegum sætaferðum þangað frá Reykjavík.

Eftir að greiðsluskjóli ferðaþjónustufyrirtækisins Allrahanda Gray Line lauk síðastliðið sumar óskuðu forsvarsmenn fyrirtækisins eftir heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar með nauðasamningum. Þeirri leið hefur dómskerfið hafnað. Nú síðast með úrskurði Hæstaréttar í byrjun mars.

Nokkrir kröfuhafar settu sig einnig upp á móti nauðasamningunum og þar á meðal Landsbankinn, Isavia og N1. Í bréfi sem meirihlutaeigendur Allrahanda Gray Line, þeir Þórir Garðarsson og Sigurdór Sigurðsson, sendu kröfuhöfum sl. sumar segir að neikvæð afstaða Landsbankans til neyðarsamninganna hafi ekki komið á óvart. Enda hafi bankinn viljað að fyrirtækið seldi fasteign sína að Klettagörðum 4 sem fyrst.

Í bréfið skrifuðu þeir Þórir og Sigurdór jafnframt að N1 hafi viljað kaupa þessa sömu eign á „verulega niðursettu verði“ en því hafi verið hafnað.

Nú herma heimildir Túrista að Allrahanda GL hefur selt fasteign sína við Klettagarða til Festis, móðurfélags N1. Söluverðið mun vera töluvert hærra en kauptilboðin sem bárust í húsnæðið í upphafi Covid-19 faraldursins fyrir tveimur árum síðan.

Horfa áfram til nauðasamninga

Í síðustu viku fékk Allrahanda GL heimild til greiðslustöðvunnar og rennur hún út þann 26. apríl. Umsjónarmaður fyrirtækisins í því ferli sendi í gær lánadrottnum boð til fundar, lögum samkvæmt, þann 22. apríl. Á fundinum verður meðal annars gerði grein fyrir því hvernig fyrirtækið hyggst koma nýrri skipan á fjármál sín og hvort óskað verði áframhaldandi greiðslustöðvunar.

Í bréfi til lánadrottna segir jafnframt að ætlunin sé að leggja fram frumvarp að nauðasamningi í lok greiðslustöðvunartímabilsins. Afstöðu lánadrottna til fyrirhugaðra ráðagerða verður leitað á fundinum næsta föstudag.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …