Samfélagsmiðlar

Segir bókanir á flugi til Íslands hafa náð hámarki

Bakslag í bókunum á flugi til landsins gæti skrifast á takmarkaða afkastagetu ferðaþjónustunnar.

island vegur ferdinand stohr

Um sex af hverjum tíu ferðamönnum hér á landi leigja sér bílaleigubíl.

Strax í vor stefndi í skort á gistingu víða um land og þá sagðist Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Bændaferða og Hey Iceland, hafa áhyggjur af því að ekki yrði hægt að þjónusta alla þá flugfarþega sem komast til landsins næstu mánuði. Alla vega miðað við framboð á flugi en það er á pari við það sem var sumarið 2019.

Þá flugu 678 þúsund erlendir farþegar frá Keflavíkurflugvelli en sú talning er notuð til að meta fjölda ferðamanna á landinu. Til samanburðar taldi þessi hópur 304 þúsund manns yfir sumarmánuðina þrjá í fyrra.

Til viðbótar við skort á gistingu við hringveginn þá er verð á bílaleigubílum mjög hátt en um sextíu prósent ferðamanna hér á landi ferðast um á bílaleigubíl samkvæmt könnunum Ferðamálastofu. Það hafa því verið merki um að bakslag gæti komið í bókanir á Íslandsflugi að undanförnu og nú sjá stjórnendur Play merki um slíkt.

Í kynningu með fjárfestum í morgun sagði Birgir Jónsson, forstjóri Play, að bókanir á flugi erlendra ferðamanna til Íslands í sumar hafi náð hámarki fyrir nokkrum vikum síðan. Forstjórinn áréttaði að pantanir væru ekki á hraðri niðurleið en að hans mati skrifast niðursveiflan á takmarkaða afkastagetu ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldurs. Sagði Birgir því líkur á að útlendingar, áhugasamir um ferðalag um Ísland í sumar, ættu í erfiðleikum með að finna gistingu og bóka afþreyingu.

Forstjóri Play bætti við að við þessar aðstæður væri kostur við viðskiptamódel flugfélagsins að geta fókusað á aðra hópa farþega. Sérstaklega tengifarþega sem eru til í að millilenda hér á Keflavíkurflugvelli á leið milli Evrópu og Norður-Ameríku.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …