Samfélagsmiðlar

Spánarflugið var í aðalhlutverki

Af þeim sem nýttu sér ferðir Play til Spánar þá voru flestir á leið til Tenerife.

Það voru nærri 37 þúsund farþegar sem nýttu sér ferðir Play í apríl og þeir hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði. Óseldu sætin voru líka færri en áður því sætanýtingin fór upp í 72 prósent.

Þotur Play sem flugu til og frá Spáni í síðasta mánuði voru þó þéttsetnari því þar voru að jafnaði níu af hverjum tíu sætum skipuð farþegum samkvæmt útreikningum Túrista sem byggja á tölum frá spænskum flugmálayfirvöldum.

Í heildina nýttu tæplega 12 þúsund farþegar sér áætlunarflug Play til og frá Spáni í apríl eða þriðjungur af öllum farþegum félagsins. Ferðirnar til Alicante, Barcelona, Las Palmas og Tenerife stóð samt aðeins undir fjórðungi af sætaframboðinu hjá Play í síðasta mánuði. Sætanýtingin í flug Play til annarra áfangastaða hafa því að jafnaði verið verr nýttar.

Af þeim sökum verður áhugavert að sjá hvernig sætanýtingin hjá Play verður nú í maí þegar umsvif félagsins eru að aukast verulega, bæði með Ameríkuflugi og eins fleiri evrópskum áfangastöðum.

Það eru aftur á mót vísbendingar að ásókn Íslendinga í flug til Spánar sé mikil. Hæstu fargjöldin hjá bæði Play og Icelandair eru í áætlunarfluginu til Tenerife eins og fjallað hefur verið um. Heimamarkaðurinn skilaði Icelandair líka hlutfallslega meiri tekjum á fyrsta fjórðungi ársins en raunin var fyrir heimsfaraldur.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …