Samfélagsmiðlar

Bæta við ferðum til Bandaríkjanna

Farþegar á leið milli Evrópu og Bandaríkjanna hafa úr tíðari ferðum að velja í vetur hjá Play. Einnig ætlar félagið að þjóna markaði fyrir vöruflutninga betur.

Það eru sex þotur í flota Play í dag.

Núna fljúga þotur Play daglega til allra þriggja áfangastaða félagsins í Bandaríkjunum en áætlun félagsins fyrir komandi vetur gerði ekki ráð fyrir neinum ferðum vestur um haf á mánudögum og þriðjudögum.

Á því hefur hins vegar verið gerð breyting því nú er hægt að bóka flug með Play til New York, Baltimore og Boston alla daga vikunnar næstu misseri.

Birgir Olgeirsson, upplýsingafulltrúi Play, segir að ákveðið hafi verið að fjölga ferðum til áfangastaða í Evrópu og í Bandaríkjunum næsta vetur og þar með fjölga tengimöguleikunum fyrir þá farþega sem ætla að fljúga með Play alla leið yfir Norður-Atlantshafið.

„Auk þess eru mánudagar og þriðjudagar vinsælir dagar þegar kemur að frakt útflutningi þannig með því að bæta við þessum dögum í nóvember og desember þá erum við að þjóna þeim markaði betur,“ bætir Birgir við.

Í New York hefur Play notast við Stewart flugvöll í stað þess að fljúga til JFK eða Newark flugvallar líkt og keppinautarnir. Spurður hvort það sé til skoðunar hjá Play að færa sig yfir á þessa stóru flugvelli þá segir Birgir að þess háttar flutningur sé ekki í pípunum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …