Samfélagsmiðlar

Play orðið verðmætara en norsku nýliðarnir samanlagt

Gengi hlutabréfa í nýjum flugfélögum hefur þróast með ólíkum hætti í ár.

Forstjórar nýju norrænu flugfélaganna. Bjørn Tore Larsen hjá Norse, Tonje Wikstrøm Frislid hjá Flyr og Birgir Jónsson forstjóri Play.

Það voru þrjú norræn flugfélög sem hófu starfsemi í heimsfaraldrinum, Norse og Flyr í Noregi og svo Play. Markaðsvirði þess íslenska hefur lækkað mun minna í ár en þeirra norsku.

Gengi hlutabréfa Flyr hefur fallið um 61 prósent og virði félagsins er núna rétt um 4,6 milljarðar íslenskra króna. Bréfin í Norse hafa lækkað um 55 prósent í ár og markaðsvirði félagsins komið niður í 7,2 milljarða kr. Lækkun ársins nemur 22 prósentum hjá Play og markaðsvirði félagsins í dag nemur 12,8 milljörðum kr.

Íslenska félagið er því einum milljarði verðmætara í dag en Flyr og Norse samanlagt enda fengu bæði félögin mikinn skell í norsku kauphöllinni í vikunni eins og sjá má hér fyrir neðan.

Áætlunarflug á vegum Norse hófst fyrst í byrjun þessa sumars á meðan Flyr og Play hófu leikinn í lok júní í fyrra. Stjórnendur Norse hafa ekki ennþá birt uppgjör í ár en það hafa kollegar þeirra hjá hinum félögunum gert.

Og samkvæmt þeim þá tapaði Flyr 9,1 milljarði íslenskra kr. á fyrri helmingi ársins en tapið hjá Play var fimm milljörðum lægra eða 4,1 milljarður kr. fyrir skatt. Farþegahópurinn hjá Flyr var hins vegar fjölmennari því hann taldi 639 þúsund farþega á meðan 236 þúsund flugu með Play. Tap á hvern farþega hjá Flyr var því um 14.300 kr. en 17.300 kr. hjá Play.

Þessar tölur segja þó ekki alla söguna því Play safnaði meira hlutafé í byrjun en Flyr. Stjórnendur þess síðarnefnda hafa því þurft að efna til tveggja hlutafjárútboða í í ár vegna fjárskorts en hætt var við síðara útboðið því gengi hlutabréfanna var komið undir boðað útboðsgengi.

Viðskiptamódel félaganna er líka ólíkt. Flyr er stórtækt í innanlandsflugi í Noregi en býður líka upp á ferðir frá stærstu borgum Noregs til fjölmargra áfangastaða í Evrópu. Play er hins vegar að hasla sér völl í flugi milli Norður-Ameríku og Evrópu.

Og á þeim markaði er félagið í samkeppni við hið fyrrnefnda Norse. Það félag heldur í dag úti áætlunarflugi til Bandaríkjanna frá Ósló, London og Berlín en í vikunni gáfu stjórnendur Norse út að horfurnar fyrir veturinn væru ekki eins góðar og reiknað hafði verið með. Sú tilkynning hafði mjög neikvæð áhrif á gengi hlutabréfanna eins og sjá má hér fyrir neðan.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …