Samfélagsmiðlar

Batamerkin ekki eins skýr

Samdrátturinn í ár miðað við metárið 2018 er að aukast á ný.

Mynd: ÓJ

Túristar á Skólavörðuholti.

Með falli Wow Air í mars 2019 dró verulega úr framboði á flugi til Íslands. Það ár fóru um Keflavíkurflugvöll fjórðungi færri en metárið 2018 og erlendum brottfararfarþegum fækkaði um 14 prósent en sú talning er notuð til að leggja mat á fjölda ferðamanna.

Í Evrópu var 2019 hins vegar metár í fluggeiranum víðast hvar, alla vega einkenndist það ekki af miklum samdrætti eins og hér á landi. Af þeim sökum er í raun eðlilegra að horfa til ársins 2018 þegar við metum batann í íslenska flug- og ferðageiranum eftir heimsfaraldur.

Og þegar það er gert kemur í ljós að nýliðinn september kemur ekki eins vel út og mánuðirnir tveir á undan. Í júlí og ágúst sl. var farþegahópurinn á Keflavíkurflugvelli rétt rúmlega sjötíu prósent af því sem verið hafði sumarið 2018. Í september vantaði hins vegar um þriðjung upp á það sem var á metárinu.

Þróun var sú sama þegar horft er til mats á fjölda ferðamanna. Í júlí vatnaði bara sextán prósent upp á það sem var fyrir fjórum árum síðan en nú í september var samdrátturinn nærri fjórðungur eins og sjá má hér fyrir neðan.

Hver þróunin er á gistimarkaðnum kemur fyrst í ljós í lok mánaðar þegar Hagstofan birtir sínar tölur.

Annar mælikvarði á gang mála í ferðaþjónustunni eru upplýsingar um notkun erlendra greiðslukorta. Sá gagnagrunnur hefur þó látið á sjá eftir að fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja flutti viðskipti sín frá íslenskum færsluhirðum eins og Túristi hefur áður rakið. Það vantar því töluverðar upphæðir inni í gagngrunninn sem er vísbending um að kortaveltan hafi aukist töluvert meira en opinberu tölurnar segja til um. Í september var velta á hvern ferðamann þó meiri en á árunum fyrir heimsfaraldur en töluvert minni en í fyrra.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …